Innlent

Borgin leggur þrjár milljónir í menningarsjóð Lennon

Erla Hlynsdóttir skrifar
Reykjavíkurborg hefur lagt þrjár milljónir króna í menningarsjóðinn Imagine Peace - Reykjavík og mun árlega leggja honum til eina milljón króna á næstu þremur árum. Borgin stofnaði sjóðinn í samstarfi við Yoko Ono, ekkju Johns Lennon, en hún hefur enn ekki lagt fé í sjóðinn. Hún mun styrkja sjóðinn með beinu fjárframlagi en upphæðin hefur ekki verið gerð opinber. Yoko Ono er ekki formlegur aðili að sjóðnum en hann er stofnaður með hennar stuðningi.

Borgarráð samþykkti stofnun sjóðsins á fundi sínum í liðinni viku en hann var formlega stofnaður á 70 ára fæðingarafmæli Lennon á föstudag þegar kveikt var á friðarsúlunni í Viðey.

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, staðfestir að enn hafi ekkert fé komið frá Yoko í sjóðinn. Það standi hins vegar til að hún leggi honum lið fjárhagslega.

Gert er ráð fyrir að fé í sjóðinn komi að stærstum hluta frá sölu minjagripa og viðburðum tengdum friðarsúlunni. Þegar er hafin sala á stuttermabolum og plakötum frá 66°norður sem tileinkaður eru verkefninu og mun ágóðinn af sölu þeirra renna í sjóðinn.

Varið höfundarrétti

Friðarsúlan er höfundarréttarvarið verk Yoko Ono og þurfa þeir sem nota verkið á einn eða annan hátt að fá leyfi hennar. Allur ágóði sem verður til af sölu minjagripa tengdum friðarsúlunni rennur í styrktarsjóðinn.

Markmið sjóðsins er að styðja við og styrkja menningarverkefni tengd börnum, ungmennum, grænum gildum og hreinni orku og verkefnum sem stuðla að eflingu mannréttinda og friðarstarfs.

Stjórn skipuð síðar

Stjórn styrktarsjóðsins mun taka ákvarðanir um þau verkefni sem sjóðurinn tekur þátt í og er framhaldið því í höndum hans.

Stjórn sjóðsins hefur enn ekki verið skipuð en hún mun samanstanda af fulltrúa Reykjavíkurborgar sem einnig verður formaður, fulltrúa Yoko Ono og þriðja fulltrúanum sem er þekktur af störfum sínum við mennningar- og mannúðarmál.

„Markmið sjóðsins er að styðja við og styrkja menningarverkefni tengd börnum, ungmennum, grænum gildum og hreinni orku og verkefnum sem stuðla að eflingu mannréttinda og friðarstarfs. Það verður vart betra," segir í bókun borgarráðs vegna stofnun sjóðsins.

Völdu Reykjavík

Dagur er afar ánægður með sjóðinn. „Okkur líst geisilega vel á þetta og það er mikill heiður fyrir borgina að standa að þessu," segir hann.

Að sögn Dags hafa allir fjölmiðlar heimsins verið fullir af fréttum um tendrun friðarsúlunnar og því sé þátttaka borgarinnar í verkefninu ákaflega góð landkynning. Honum finnst einnig merkilegt að þau feðgin, Yoko Ono og Sean Ono Lennon, hafi einmitt valið að vera í Reykjavík á fæðingarafmæli Johns Lennon því nærveru þeirra hafi sannarlega verið óskað víða um heim á þessum merku tímamótum.


Tengdar fréttir

Rúmlega 1500 manns við tendrun Friðarsúlunnar

Í tilefni af tendrun Friðarsúlunnar á 70 ára fæðingarafmæli John Lennon, bauð Yoko Ono gestum í fríar kvöldsiglingar til Viðeyjar í gærkvöldi. Elding flutti rúmlega 1500 manns yfir sundin en aldrei fyrr hefur Elding flutt jafn marga farþega til Viðeyjar á jafn skömmum tíma.

John Lennon sjötugur í dag

Tónlistarmaðurinn John Winston Lennon, sem seinna kastaði millinafninu og tók upp nafnið John Ono Lennon, hefði orðið sjötugur í dag hefði hann lifað.

Einkaviðtal við Yoko Ono

Hin heimsþekkta listakona og friðarsinni, Yoko Ono, afhenti viðurkenningar úr LennonOno-friðarsjóðnum við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.

John Lennon hefði orðið framúrstefnurokkari og aðgerðarsinni

Yoko Ono segir tímann líða undarlega hratt og þykir ótrúlegt að John Lennon hefði orðið sjötugur í dag. Hefði hann lifað, væri hann aðgerðarsinni og framúrstefnurokkari, segir ekkjan. Ringo Starr, annar tveggja eftirlifandi Bítla, er á landinu og verður á tónleikum Plastic Ono Band í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×