Stuðningsfulltrúar gagnrýna norræna velferðarstjórn 11. október 2010 15:02 Starfsfólk í heilbrigðis- og velferðarþjónustu er síst of vel haldið af launum sínum Mynd: Pjetur
Stjórn félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmælir harðlega niðurskurði í heilbrigðisþjónustu og velferðarmálum. „Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ætlar norræna velferðarstjórnin í stórfelldan og sársaukafullan niðurskurð sem mun bitna alvarlega á heilbrigðisþjónustu og velferð, og koma verst niður á byggðum utan höfuðborgarsvæðisins. Í þessum niðurskurði felst líka mikil fækkun starfsfólks við heilbrigðisstofnanir og við velferðarþjónustu. Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa mótmælir þessari ráðagerð hástöfum!," segir í tilkynningu sem stjórn félagsins hefur sent frá sér. Þar segir að starfsfólk í heilbrigðis- og velferðarþjónustu sé síst of vel haldið af launum sínum og vandséð hver hagræðingin er í því að borga því í staðinn atvinnuleysisbætur, sem slaga hátt upp í launin. „Í öðru lagi eru skjólstæðingar velferðarþjónustunnar það fólk í landinu sem síst má við niðurskurði, fólkið sem stendur höllustum fæti og getur síst varist. Niðurskurður í velferðarþjónustu þýðir að einhver fjöldi þessara fjölskyldna og einstaklinga færist niður fyrir fátæktarmörk og einhver fjöldi þeirra niður í hungurmörk. Í þriðja lagi ætlar ríkið á sama tíma að verja háum fjárhæðum í málaflokka sem má kalla lúxus, samanborið við það að sjá fólki farborða. Við krefjumst þess að ríkið hætti við niðurskurð í heilbrigðismálum og velferð og forgangsraði fjármunum sínum betur til almennings í landinu," segja stjórnarmenn félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira