Innlent

Styttist í að námamenn líti dagsljósið á ný

Björgunarmenn í Chile leggja nú lokahönd á göngin sem boruð hafa verið niður til námamannanna 33 sem hafa verið fastir neðanjarðar í rúma tvo mánuði.

Eftir að holan var boruð kom í ljós að nauðsynlegt er að fóðra hana með járnröri á nokkrum stöðum og síðan á að hífa mennina upp, einn í einu, en hver ferð tekur um tíu til fimmtán mínútur. Sérstök gleraugu eru til reiðu fyrir mennina sem þurfa tíma til þess að venjast sólarljósinu að nýju eftir mánaðalanga dvölina neðanjarðar.

Búist er við því að lokið verði við fráganginn á holunni síðar í dag. Vonast er til að fyrstu mennirnir líti síðan dagsins ljós á miðvikudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×