Innlent

Fólk nýti bílastæði við Laugardalsvöll

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Laugardalsvöllur. Mynd/ Þorkell.
Laugardalsvöllur. Mynd/ Þorkell.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu.

Annað kvöld fer fram landsleikur Íslendinga og Portúgala í knattspyrnu á Laugardalsvellinum. Lögreglan segir að reynsla síðustu ára sýni að bílastæði við völlinn séu ekki fullnýtt þegar ýmsir stórviðburðir fari þar fram. Þess í stað hafi margir lagt það í vana sinn að leggja ólöglega á Reykjavegi og Engjavegi svo aðeins tvær götur séu nefndar. Sömuleiðis sé iðulega lagt ólöglega á ýmis grassvæði í Laugardalnum. Lögreglan ítrekar því tilmæli sín til ökumanna og hvetur þá til að nýta bílastæðin til fulls. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 kr., rennur í Bílastæðasjóð.

Lögreglan segir það vera ljóst að ekki geti allir vallargestir lagt bílum sínum við Laugardalsvöllinn en í nágrenni hans eru víða ágæt bílastæði. Veðurútlitið sé gott og því ætti engum að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×