Innlent

IP-staðlar betri lausn í flugi

Þota Icelandair hefur sig á loft frá Keflavíkurflugvelli. Vélar félagsins í áætlunarflugi milli landa tóku þátt í að prófa nýja samskiptatækni við flugumferðarstjórn í síðasta mánuði. Fréttablaðið/Heiða
Þota Icelandair hefur sig á loft frá Keflavíkurflugvelli. Vélar félagsins í áætlunarflugi milli landa tóku þátt í að prófa nýja samskiptatækni við flugumferðarstjórn í síðasta mánuði. Fréttablaðið/Heiða
Upplýsingatækni Fyrstu raunprófanir heims á notkun internetstaðla (VoIP) í samskiptum flugumferðar­stjórnar við flugvélar áttu sér stað hér á landi í nýliðnum mánuði.

„Ég geri ráð fyrir því að eftir nokkur ár verði þessi tækni orðin allsráðandi í heiminum,“ segir Hörður Arilíusson flug­umferðar­stjóri, sem vann að prófunum. Að verkefninu standa Isavia, sem sér um alla flugleiðsögu­þjónustu á íslenska flug­umferðar­svæðinu, og fyrirtækin Frequentis og Northrop Grumman Park Air Systems.

VoIP er sú tækni sem notuð er til gagnasendinga yfir internetið. Slík tækni hefur hins vegar ekki verið tekin í gagnið í samskiptum í flugiðnaði þar sem unnið er að því að sýna fram á að hún standist alla staðla um öryggi og gæði í flugi. Prófanirnar sem fram fóru hér á landi eru þær fyrstu í heiminum samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum staðli Euro­ace (Evrópusamtaka um staðla í flugtækjabúnaði).

Um borð í flugvélunum er notast við hefðbundna talstöðvartækni, en nýjungin felst í því að samskiptin eru flutt yfir netið frá móttökustöð í landi og til flug­umferðar­stjórnarinnar. „Við settum upp platform þar sem við vorum með á einu neti bæði þessi hefðbundnu radíó sem við erum að nota í dag og svo þessa nýju IP-tækni,“ segir Hörður og kveður sex móttökustaði fyrir sendingar hafa verið prófaða. „Þetta prófuðum við síðan á móti lifandi umferð. Þeir voru svo almennilegir hjá Icelandair að áhöfn hjá þeim var í stöðugu sambandi við okkur allt frá flugtaki í Keflavík og þar til hún hvarf úr radíódragi nálægt Færeyjum.“

Hörður segir prófanirnar hafa tekist vel og niðurstöðurnar lofi afar góðu varðandi upptöku IP-staðla í samskiptum flugstjórnar og flugvéla. Þannig hafi til dæmis samtöl sem send voru um netið heyrst betur, án allrar bjögunar og truflana. „Það er nú bara eins og þú sért hérna inni í klefanum hjá okkur, sagði til dæmis einn flugstjórinn,“ bætir Hörður við.

Helsta kostinn við nýja tækni segir Hörður samt vera minni kostnað, sem ætti að skila sér í lægri fargjöldum á heimsvísu. Netstaðla segir hann í notkun alls staðar í heiminum og því sparist heilmikið við uppsetningu á tækjabúnaði. „IP-netin eru til úti um allt, en við höfum bara ekki mátt fara inn á þau út af því að ekki var fullreynt hvort þau væru nógu örugg. Þessar prófanir sýna fram á að öryggið er nægt.“

olikr@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×