Innlent

Samstöðufundur á Selfossi vegna niðurskurðar

Boðað hefur verið til samstöðufundar við Hótel Selfoss síðdegis til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði í heilbrigðisþjónustu.

Útvarpsstöðin Suðurland FM verður með beina útsendingu fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. Samstöðufundurinn hefst klukkan fimm.

Á sama tíma og mómælin hefjast byrjar fundur sunnlenskra sveitastjórnamanna með heilbrigðisráðherra, þingmönnum og forsvarsmönnum heilbrigðistofnana á Suðurlandi. Sá fundur er haldinn inni á Hótel Selfossi.

Víða um land hafa verið haldnir mótmælafundur síðustu daga þar sem stór hluti íbúða á viðkomandi svæðum mætir. Má því búast við nokkrum fjölda við Hótel Selfoss síðdegis.

Í fjárlögum ársins 2011 er gert ráð fyrir 16 prósenta niðurskurði á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, eða um 412 milljónum króna

Vegna þessa er gert ráð fyrir að segja þurfi upp allt að 60 manns sem þar starfa en stöðugildin nú eru 240.



Til samstöðufundarins boða:

Samband sunnlenskra kvenna

Verkalýðsfélag Suðurlands

Búnaðarsamband Suðurlands

Verslunarmannafélag Suðurlands

Báran stéttarfélag

Félag iðn- og tæknigreina

Félag opinbera starfsmanna á Suðurlandi

Drífandi stéttarfélag

Atorka - Félag atvinnurekanda á Suðurlandi

Efling stéttarfélag

Samtök sunnlenskra sveitafélaga

Vörður, félag stjórnenda á Suðurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×