Fimm ættliðir af sex hafa séð Rigoletto 11. október 2010 05:00 Gissur Ólafur Erlingsson, langafi Ólafs Kjartans Sigurðarsonar barítónsöngvara, við generalprufu á óperunni Rigoletto í Íslensku óperunni. mynd/Auður
Gissur Ólafur Erlingsson, langafi aðalstjörnu óperunnar Rigoletto, Ólafs Kjartans Sigurðarsonar, mætti á generalprufu sýningarinnar á fimmtudaginn. Ólafur Kjartan sjálfur er nýlega orðinn afi þannig að Gissur er þar með orðinn langalangalangafi en Gissur varð 101 árs í mars síðastliðnum. Rigoletto var frumsýnd á laugardaginn var. „Ég hef séð Ólaf Kjartan syngja þó nokkrum sinnum, hann skilur mig aldrei út undan á gestalistanum þegar hann syngur hér heima,“ segir Gissur Ólafur. „Mér þótti þetta alveg stórkostlegt, en að vísu þykir mér alltaf best það sem ég sá síðast.“ Gissur Ólafur, sem er fyrrverandi umdæmisstjóri Pósts og síma á Seyðisfirði og starfaði jafnframt sem bóka- og skjalaþýðandi, á í dag nærri 150 afkomendur. Þeir langfeðgar Ólafur Kjartan og Gissur Ólafur halda góðu sambandi, senda hvor öðrum tölvupóstskeyti milli landa sem innihalda gjarnan limrur. „Jú, ég er líka á Facebook en er orðinn leiður á henni og því lítið þar inni,“ bætir Gissur við. „Langafi vildi fremur koma á generalprufuna en frumsýninguna til að þurfa ekki að vera að þvælast svona síðla kvölds. Hann sat fyrir miðju á þriðja bekk eins og höfðingi og hafði þá daginn áður verið á hádegistónleikum í Hafnarborg. Hann er mikill menningarneytandi og ótrúlega sprækur, líkamlega og andlega. þrátt fyrir háan aldur. Hann gaf mér góða krítík sem var mér mikils virði,“ segir óperusöngvarinn sjálfur, Ólafur Kjartan. „Auðvitað er hálflygilegt að barnabarn mitt eigi langalangalangafa á lífi, maður klípur sig á hverjum degi að þetta sé hægt. Ég er jafnframt svo lánsamur að geta kallað langafa góðan félaga um leið en þar sem ég bý erlendis skiptumst við á tölvupóstum. Langafi hefur leiðrétt tímaskynið hjá manni, mörgum þykir sem óperur tilheyri svo löngu liðnum tíma en þegar hann fæddist voru einungis sextíu ár frá því að Verdi samdi Rigoletto.“ Ættliðirnir sem hafa séð Rigoletto eru fimm en sjá sjötti og yngsti er aðeins sjö mánaða og fékk því ekki að vera með. Frumsýningin gekk að Ólafs sögn afar vel, við glimrandi undirtektir. „Maður er hálforðlaus yfir viðtökunum og Íslendingar er greinilega ekki orðnir leiðir á óperum. Það eru sem betur fer ekki allir Ásbjörn.“juliam@frettabladid.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira