Lífið

Úrslitakostur Conans

Jay Leno og Conan O‘Brian berjast um sjónvarpstímann á NBC sjónvarpsstöðinni.
Jay Leno og Conan O‘Brian berjast um sjónvarpstímann á NBC sjónvarpsstöðinni.

Sjónvarpsstöðin NBC hefur lofað spjallþáttastjórnandanum Jay Leno að hann fá aftur gamla tímann sinn hjá stöðinni strax að loknum Vetrarólympíuleikunum. The Tonight Show with Jay Leno var sýndur klukkan 23.30 þar til hann var færður fram til klukkan 22.00 og tók þá Conan O‘Brian við gamla tíma Leno.

Nú vilja NBC-menn aftur á móti að Leno fái aftur gamla tímann sinn og hafa sett O‘Brian úrslitakosti, annaðhvort fer spjallþáttur hans í loftið á miðnætti eða hann hættir hjá sjónvarpsstöðinni.

Samkvæmt heimildarmönnum hefur O‘Brian ekki tekið ákvörðun um hvað hann vill gera að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.