Spara í umhverfis- og forvarnamálum 25. júní 2010 05:15 Lagt verður til á fundi bæjarráðs í dag að leggja niður tvær stöður á sviði umhverfismála og íþrótta-, forvarna og menningarmála. Þá stendur einnig til að leggjan niður stöðu starfsmannastjóra sem enginn hefur gegnt í tvö ár.fréttablaðið/gva
Stöður sérfræðings í umhverfismálum og verkefnisstjóra í íþrótta-, forvarna- og menningarmálum í Árborg verða lagðar niður, gangi hugmyndir meirihlutans eftir. Tillögur þess efnis verða lagðar fram á fundi bæjarráðs í dag. Þá verður staða starfsmannastjóra lögð niður, en enginn hefur gegnt henni í tvö ár. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var einnig rætt við tvo yfirmenn á Fjölskyldumiðstöð, en ekki hefur verið tekin ákvörðun um að leggja þær stöður niður. Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður framkvæmda- og veitustjórnar, segir að þetta sé hluti af sparnaðaraðgerðum nýs meirihluta. Sveitarfélagið sé þannig sett að gera þurfi ákveðnar breytingar. Búið sé að ákveða að leggja þessar stöður niður og ræða við viðkomandi. Önnur svið séu einnig til skoðunar, en hún búist ekki við fækkun þar. Ragnheiði Hergeirsdóttur, oddvita Samfylkingarinnar og fyrrum bæjarstjóra, líst illa á málið. Hún segir aðferðafræðina dapurlega og vandséð hví liggi svona á. „Það liggur ekki fyrir nein stefna eða hugmyndir um það hvernig skipulagið á að vera í kjölfarið, hvert þau verkefni sem þarna er verið að leggja niður eiga að fara, hvort það eigi að hætta að sinna þeim eða fela það öðrum starfsmönnum. Mér finnst það lágmarkskrafa þegar fólk fer í skipulagsbreytingar með niðurlagningu starfa, að það liggi fyrir í hvaða átt á þá að halda.“ Elfa Dögg segir breytingarnar hins vegar vera gerðar að yfirlögðu ráði og þeim verkefnum sem viðkomandi aðilar sinntu hafi verið komið fyrir annars staðar. Tómstundafulltrúi sveitarfélagsins er hættur og Elfa Dögg segir að gerðar verði breytingar á þeim sviðum. Ráðinn verði nýr starfsmaður sem taki yfir tómstunda- og íþróttamál. Staða sérfræðings í umhverfismálum var stofnuð fyrir tveimur árum og var Elfa Dögg þá einn umsækjenda. Hún segir að sveitarfélagið hafi ekki efni á að halda þeirri stöðu úti núna. Hún segir að umhirðumál í sveitarfélaginu muni falla beint undir þá nefnd sem sjái um framkvæmda- og veitustjórnina, sem hún er í forsvari fyrir. Ragnheiður segir dapurlegt að leggja niður stöður í þessum málaflokkum, gott starf hafi verið unnið á þeim sviðum sem sveitarfélagið hafi fengið viðurkenningar fyrir. „Mér finnst þetta bera vott um að fólk sé ekki búið að setja sig inn í málin.“ kolbeinn@frettabladid.is elfa dögg þórðardóttir
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira