Ísland standi við lágmarkstryggingu 25. júní 2010 18:42
Forseti Eftirlitsstofnunar EFTA segir stofnunina ekki hafa neina skoðun á lánakjörum Breta og Hollendinga vegna Icesave samninganna við Íslendinga. Hins vegar telji stofnunin ótvírætt á Íslendingar eigi að greiða sem svarar til um 21 þúsund evrum á hvern Icesave reikning. Ráðherrafundur EFTA ríkjanna fór fram í Reykjavík í gær og kom Per Sanderud forseti Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, hingað til lands í tengslum við fundinn. Eftirlitsstofnunin úrskurðaði í maí að Íslendingar hefðu gerst brotlegir við tilskipun Evrópusambandsins um innstæðutryggingar, þar sem ekki hefði verið staðið við að greiða 21 þúsund evrur á hvern Icesavereikning. Íslendingar hefðu í þrígang fengið frest til að standa við skuldbindingarnar og síðasti fresturinn rann út í október 2009. Ekki er hægt að veita frekari fresti. Sanderud segir eftirlitsstofnunina ekki hafa neina skoðun á því hvort Íslendingar taki lán fyrir skuldbindingunum og á hvaða kjörum. „Það er ljóst að allt veltur á því hvort Íslendingar endurgreiði þessar 20.000 evrur á hvern innlánsreikning. Fari svo erum við reiðubúin að láta málið niður falla," segir Per Sanderud, forseti ESA. Íslensk stjórnvöld hafa frest til 26. júli að svara áliti ESA. Ef þau fallast ekki á álit stofnunarinnar verður málið sent til EFTA dómstólsins til úrskurðar, en hvaða þýðingu hefur það? „Fari þetta fyrir dómstólinn mun hann staðfesta að Íslendingum beri að borga þessar 20.000 evrur og dómstóllinn mun fylgja því eftir" segir Sanderud.
Mest lesið Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Innlent Bíll í ljósum logum Innlent Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Innlent Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Innlent Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Innlent Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Innlent Fleiri fréttir Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Þungaflutningarnir með þeim mestu sem sést hafa Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Bíll í ljósum logum Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjanesbæ Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin „Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Gera ráð fyrir að aðildarviðræður klárist fyrir lok kjörtímabilsins Tókust á um Borgarlínuna Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Rukka ekki skólagjöld í nýjum einkaskóla í Kópavogi Hæddist að Kristrúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“ Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Aflýsa hættustigi og rýmingum á Seyðisfirði Opinn fundur í utanríkismálanefnd um ESB atkvæðagreiðslu Burðardýr í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Sjá meira