Rúmlega tvær milljónir til að rannsaka einelti 25. júní 2010 13:42 Frá afhendingu styrksins.
Veittur hefur verið styrkur að fjárhæð 2,2 milljónir króna úr Styrktarsjóði Margaret og Bent Scheving Thorsteinssonar til rannsóknar á einelti gegn börnum á Íslandi. Um er að ræða heildstæða, þverfræðilega rannsókn en markmið sjóðsins er að standa fyrir rannsóknum á einelti og kanna allar lagalegar og siðferðilegar leiðir til að fyrirbyggja einelti og bæta fyrir afleiðingar þess. Styrkurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu. Verkefnisstjóri eineltisrannsóknarinnar er Þórhildur Líndal, forstöðumaður Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr í fjölskyldumálefnum. Enn fremur taka Halldór S. Guðmundsson, lektor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og Halldóra Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild HÍ, þátt í undirbúningi og umsjón rannsóknarinnar. Umsjón og stjórnsýsla verkefnisins verður í höndum Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr í fjölskyldumálefnum í samvinnu við Félagsráðgjafardeild, Lagadeild og Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Ráðgefandi sérfræðingur við framkvæmd rannsóknarinnar verður dr. Brynja Bragadóttir. Markmið rannsóknarinnar er að greina þekkingu á tíðni eineltis, viðbrögð við því og lagaúrræði þegar um einelti er að ræða. Skoðuð verður skilgreining á einelti í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum, innan sem utan skólakerfisins og í félagslegri þjónustu við börn. Þá verður rannsakað hvort viðbrögð við einelti séu samræmd af hálfu þeirra sem vinna með börnum. Rannsókninni er ætlað að efla sérfræðiþekkingu á einelti enn frekar og styrkja þannig félagsleg og lagaleg úrræði til að sporna við því.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira