Jón vill hitta alla en eftirspurnin er gríðarleg 21. september 2010 14:59 Jón Gnarr er umsetinn. MYNDIR/GVA
Regína Ásvaldsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra segir að Jón Gnarr borgastjóri sé allur af vilja gerður til þess að hitta sem flesta borgarbúa sem eftir því sækjast. Fulltrúar Frjálslynda flokksins hafa gagnrýnt Jón fyrir að hafa ekki samband og Júlía Hjaltadóttir sagðist á Vísi í dag vera óhress með að hafa beðið í rúman mánuð eftir viðtali hjá borgarstjóra án árangurs. Regína segir að viljaleysi sé alls ekki um að kenna. Á löngum starfsferli í ráðhúsinu segist hún hinsvegar aldrei hafa kynnst annarri eins ásókn í að fá að hitta borgarstjórann. Á hverjum degi bætist í bunkann óskir um viðtöl, beiðnir um erindi, boð á viðburði og annað, auk þess sem gríðarleg eftirspurn hafi verið eftir viðtölum við borgarstjórann erlendis frá. „Að sjálfsögðu er hann allur af vilja gerður til að hitta fólk," segir Regína en bætir því við að vinsældir hans séu einfaldlega svo miklar að erfitt reynist að koma því við. Júlía Hjaltadóttir móðir barns í Ölduselsskóla sagðist í samtali við Vísi fyrr í dag vera óhress að fá ekki staðfestingu á því hvort hún muni fá að hitta borgarstjórann yfirleitt, hversu löng sem sú bið gæti orðið. Hún hafi því ekki hugmynd um hvenær eða hvort hún fái áheyrn á næstunni. Regína segir það koma til greina að úthluta viðtalstímum fram í tímann en hafa verði í huga að borgarstjóri þurfi að hafa ákveðið frelsi til að breyta dagskrá sinni með stuttum fyrirvara. Hvað varðar málefni Frjálslynda flokksins segir Regína það mál vera í vinnslu og að erindi þeirra verði svarað innan skamms.
Tengdar fréttir Erfiðara að fá fund með Jóni Gnarr en Bin Laden „Við höfum engin svör fengið," segir Guðjón Arnar Kristjánsson fyrrverandi formaður Frjálslynda flokksins. Hann hefur ásamt, Sigurjóni Þórðarsyni, formanni Frjálslynds flokksins, ítrekað óskað eftir fundi með borgarstjóra Reykjavíkur, Jóni Gnarr. Sigurjón segist alltaf fá þau svör að borgarstjóri sé of upptekinn til að veita honum móttöku. Honum finnst þetta óeðlilegt afgreiðsla enda sé hann í forsvari fyrir starfandi stjórnmálaafl á Íslandi og telur hreinlega að um andúð Jóns Gnarr í garð Frjálslynda flokksins sé að ræða. 20. september 2010 17:53 Bíður eftir borgarstjóra en er númer 200 í röðinni Móðir barns í Ölduselsskóla í Breiðholti tekur undir þær gagnrýnisraddir sem heyrst hafa að undanförnu þess efnis að erfitt sé að komast í samband við Jón Gnarr borgarstjóra Reykjavíkur. Guðjón Arnar Kristjánsson fyrrverandi formaður Frjálslynda flokksins sagði í viðtali á Vísi í gær að erfiðara væri að komast í samband við Jón en Osama bin Laden. 21. september 2010 13:40 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira
Erfiðara að fá fund með Jóni Gnarr en Bin Laden „Við höfum engin svör fengið," segir Guðjón Arnar Kristjánsson fyrrverandi formaður Frjálslynda flokksins. Hann hefur ásamt, Sigurjóni Þórðarsyni, formanni Frjálslynds flokksins, ítrekað óskað eftir fundi með borgarstjóra Reykjavíkur, Jóni Gnarr. Sigurjón segist alltaf fá þau svör að borgarstjóri sé of upptekinn til að veita honum móttöku. Honum finnst þetta óeðlilegt afgreiðsla enda sé hann í forsvari fyrir starfandi stjórnmálaafl á Íslandi og telur hreinlega að um andúð Jóns Gnarr í garð Frjálslynda flokksins sé að ræða. 20. september 2010 17:53
Bíður eftir borgarstjóra en er númer 200 í röðinni Móðir barns í Ölduselsskóla í Breiðholti tekur undir þær gagnrýnisraddir sem heyrst hafa að undanförnu þess efnis að erfitt sé að komast í samband við Jón Gnarr borgarstjóra Reykjavíkur. Guðjón Arnar Kristjánsson fyrrverandi formaður Frjálslynda flokksins sagði í viðtali á Vísi í gær að erfiðara væri að komast í samband við Jón en Osama bin Laden. 21. september 2010 13:40