Innlent

Tveir alvarlega slasaðir fluttir með þyrlu til Reykjavíkur

Fimm erlendir ferðamenn slösuðust, þar af tveir alvarlega, þegar níu manna Renault smárúta valt á Biskupstungnabraut á milli Minni Borgar og Laugarvatnsafleggjara laust fyrir klukkan hálf ellelfu í morgun.

Óskað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja tvo af slysstað og voru þeir komnir um borð í hana rétt fyrir klukkan hálf tólf. Þeir voru fluttir áleiðis á Landspítalann í Reykjavík, einn var var fluttur með sjúkrabíl á Slysadeild Landsspítalans, tveir í sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Selfossi, hvorugur alvarlega meiddur, og einn slapp ómeiddur.

Ekkert er enn vitað um tildrög slyssins , en veður var þurrt og bjart þegar slysið varð og aðstæður til aksturs allar hinar bestu. Eftir því sem Fréttastofan kemst næst eru nokkrir hinna slösuðu kínverskir.

Vegna slyssins er umferð beint um hjáleið um Sólheimaveg.




















Tengdar fréttir

Sex slasaðir eftir alvarlegt bílslys

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrir stundu vegna bílslyss sem varð milli Minni Borgar og Svínavatns. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að sex manns hafi verið í bílnum að því er talið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×