Innlent

Sex slasaðir eftir alvarlegt bílslys

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrir stundu vegna bílslyss sem varð milli Minni Borgar og Svínavatns. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að sex manns hafi verið í bílnum að því er talið er.

Að sögn lögreglu á Selfossi eru þrír alvarlega slasaðir og þrír eitthvað minna. Allir tiltækir sjúkraliðar og lögreglumenn hafa verið kallaðir á vettvang.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×