Innlent

Eldur í ruslatunnu

Eldur kom upp í ruslatunnu við hús í Bolholti nú fyrir stundu. Slökkviliðsmenn eru búnir að slökkva eldinn. Þeir fóru einnig yfir klæðningu í þaki til að ganga úr skugga um að enginn eldur væri þar.

Ekki er vitað hvers vegna eldurinn kviknaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×