Innlent

Gíslataka á Hvanneyri - maðurinn enn í haldi

Maður vopnaður hnífi hélt fjórum nemendum við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í gíslingu í nótt. Lögregla fékk tilkynningu um málið um klukkan hálfþrjú og fór strax á vettvang.

Að sögn Theódórs Þórðarsonar yfirlögregluþjóns voru nemendurnir sem um ræðir lausir úr prísund sinni þegar lögreglu bar að garði en í miklu uppnámi. Hinn meinti gíslatökumaður var enn á staðnum og var hann handtekinn af lögreglu. Hann var vopnlaus en lögregla fann hníf á svæðinu sem svaraði til lýsingar nemendanna. Enginn meiddist í atganginum.

Maðurinn er enn í haldi lögreglu að sögn Theódórs og verður hann yfirheyrður frekar í dag. Hann segist ekki eiga von á því að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir manninum. Pressan greindi fyrst frá málinu og þar segir að maðurinn sé á skilorði.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×