Innlent

Glysbomba í málaferlum vegna bílatryggingar

Ásdís Rán.
Ásdís Rán.

Aðalmeðferð er hafin í máli Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur gegn tryggingafélaginu Verði vegna ágreinings um tryggingu á bifreið sem hún ók þegar hún lenti í bílslysi árið 2007. Málið var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Deilt er um hvort tryggingin á bílnum hafi verið í gildi þegar Ásdís Rán lenti í alvarlegu bílslysi. Hún var ólétt þegar hún lenti í slysinu en þá var hún komin sjö mánuði á leið með sitt þriðja barn.

Ásdís slapp nokkuð vel miðað við aðstæður, hún fékk heilahristing og missti meðvitund en barnið skaðaðist ekki vegna slyssins.

Málinu lýkur um hádegi og verður þá lagt fyrir dóm. Sjálf er Ásdís Rán búsett í Búlgaríu ásamt fjölskyldu en maður hennar, Garðar Gunnlaugsson, spilar með fótboltaliði þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×