Innlent

Rússar heiðra Ólaf Ragnar

Ólafur Ragnar tekur við viðurkenningu úr hendi Vladimir Putin forsætisráðherra Rússlands.
Ólafur Ragnar tekur við viðurkenningu úr hendi Vladimir Putin forsætisráðherra Rússlands.

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var í gær gerður að heiðursfélaga í Rússneska landfræðifélaginu við hátíðlega athöfn á Alþjóðaþingi um Norðurslóðir sem haldið er í Moskvu.

Forsætisráðherra Rússlands, Vladimir Putin, afhenti forseta heiðursskjal og sérstakt innsigli úr bronsi þessu til staðfestingar að því er fram kemur í tilkynningu frá embættinu.

„Í ávarpi sem formaður Rússneska landfræðifélagsins, Sergei Shoigu flutti við þetta tilefni vísaði hann til margþætts framlags forseta Íslands til málefna Norðurslóða, en forsetinn hefði um árabil verið virkur þátttakandi í samvinnu og samræðum um málefni Norðurslóða og stuðlað að auknum tengslum rannsóknarstofnana, háskóla og fræðimanna," segir ennfremur.

Heimsókn Ólafs Ragnars til Moskvu lauk í gærkvöldi en í ferðinni átti hann viðtöl við ýmsa fjölmiðla og svaraði fyrirspurnum á fjölmennum blaðamanna-fundi. „Forseti var í sérstökum viðtalsþætti í rússneska fréttasjónvarpinu RIA Novosti og einnig í alþjóðlegu rússnesku sjónvarpsstöðinni Russia Today auk þess sem hann ræddi sérstaklega við aðra fréttamiðla, þar á meðal fréttavef Bloomberg."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×