Innlent

Einn var fluttur á sjúkrahús

rektor háskólans Ofbeldi er ekki liðið í Landbúnaðarháskólanum, að sögn Ágústs Sigurðssonar rektors.
Fréttablaðið/GVA
rektor háskólans Ofbeldi er ekki liðið í Landbúnaðarháskólanum, að sögn Ágústs Sigurðssonar rektors. Fréttablaðið/GVA
Liðlega tvítugur maður var handtekinn á heimavist Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri um klukkan þrjú aðfaranótt föstudags vegna ógnandi tilburða við samnemendur sína.

Maðurinn deildi húsi með þremur öðrum nemendum skólans og var teiti í húsinu, sem mun hafa farið úr böndunum. Maðurinn brá kjöthnífi á loft og hafði í hótunum við fólkið. Það flúði undan honum inn í herbergi og læsti að sér. Þegar maðurinn gerði tilraun til að brjóta sér leið inn í herbergið hringdi fólkið í lögreglu.

Fólkið var komið út úr herberginu þegar lögreglu bar að garði. Engin meiðsl urðu á fólki en flytja varð stúlku á sjúkrahús og þurfti hún á áfallahjálp að halda, samkvæmt lögreglunni í Borgarnesi.

Lögreglan yfirheyrði manninn í gær eftir að hann komst í viðræðuhæft ástand. Honum var sleppt lausum að því loknu. Beðið er niðurstöðu blóðrannsóknar sem leiða mun í ljós hversu mikið áfengismagn var í blóði hans. Sambýlisfólk mannsins hefur kært hann vegna málsins.

„Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum, höfum vikið honum úr skólanum og úr húsinu," segir Ágúst Sigurðsson, rektor háskólans. - jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×