Innlent

Leitað að verkefnum sem hægt er að flýta

Borgarstjórinn í Reykjavík lagði til að viðhaldsverkefni yrðu færð fram í tíma.
Borgarstjórinn í Reykjavík lagði til að viðhaldsverkefni yrðu færð fram í tíma.
Borgarráð hefur samþykkt að fela framkvæmda- og eignasviði að undirbúa tillögur um að flýta brýnum endurbyggingar- og endurbótaverkefnum mannvirkja sem annars hefðu komið til framkvæmda 2013-2015.

„Miða skal við að þau verði unnin þegar mestur samdráttur er í atvinnumálum eða á árunum 2011-2012. Að sama skapi yrði dregið samsvarandi úr framkvæmdum þegar atvinnuástand hefur færst í eðlilegra horf," segir í tillögu sem sett var fram af Jóni Gnarr borgarstjóra. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×