Innlent

Katrín ræðir við Abdullah

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Iðnaðarráðherra ætlar að taka á móti orkuálaráðherra Indlands. Mynd/ GVA.
Iðnaðarráðherra ætlar að taka á móti orkuálaráðherra Indlands. Mynd/ GVA.
Dr. Farooq Abdullah, orkumálaráðherra á Indlandi, mun dvelja hér á landi næstu þrjá daga í boði Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Katrín mun ræða við Abdullah á mánudaginn um aukið samstarf landanna á sviði endurnýjanlegrar orku.

Auk þess mun Dr. Farooq Abdullah og sendinefnd hans sitja vinnufund um tækifæri til aukins samstarfs þjóðanna í orkumálum með iðnaðarráðherra, Guðna Jóhannessyni orkumálastjóra og fulltrúum íslenskra orkufyrirtækja og verkfræðistofa á sviði jarðhitarannsókna og -vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×