Tjónið hefði orðið miklu meira ef Sjóvá hefði farið í þrot Sigríður Mogensen og Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. september 2010 12:41 Steingrímur segir það öllu vera ef tryggingafélag fer í þrot en ef banki fer í þrot.
Ef Sjóvá hefði farið í þrot hefði það valdið ríkinu mun meira tjóni en sem nemur þeirri upphæð sem ríkið lagði tryggingafélaginu til fyrr á árinu, segir fjármálaráðherra. Með ákvörðun stjórnvalda hafi tekist að koma í veg fyrir stórslys. Alls eru 25 mál er varða ríkisaðstoð til skoðunar hjá eftirlitsstofnun EFTA. ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hóf í vikunni formlega rannsókn á því hvort íslenska ríkið hafi veitt tryggingafélaginu Sjóvá ólögmæta ríkisaðstoð þegar það lagði 11,6 milljarða króna inn í félagið fyrr á árinu. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að um 25 mál sem varða ráðstöfun stjórnvalda hafi verið í skoðun hjá ESA. Stofnunin hafi ekki tekið neina afstöðu til þess hvort um ólöglega ríkisaðstoð hafi verið að ræða í tilfelli Sjóvá, heldur sé verið að skoða málið. Búið sé að ljúka skoðun á nokkrum öðrum málum og hafi stofnunin meðal annars samþykkt endurfjármögnun sparisjóðanna. „En það eru allmörg mál opin og það er því miður þannig að þær aðstæður sem við höfum þurft að takast á við og ýmsar ráðstafanir sem ríkið taldi sig verða að grípa til kalla á það að mörg samskiptamál hafa komið upp. Og það eru mörg álitamál sem þarf að fara yfir og bera saman við reglurnar um ríkisstyrki," segir Steingrímur Meðal þess sem fram kemur í ákvörðun ESA er sú gagnrýni að íslensk stjórnvöld hafi ekki tilkynnt stofnuninni áður en ríkið lagði Sjóvá til fjármagn. Steingrímur segir að ekki hafi gefist langur tími til þess að gera slíkt. Þarna hafi eitt af stærstu tryggingarfélögum landsins verið komið í bráðavanda. Ef það hefði farið í þrot, hefði það valdið stórkostlegum skaða og ríkinu trúlega miklu meira tjóni heldur en þó þurfti að leggja að mörkum til að koma því í skjól. Steingrímur segist sannfærður um að ákvörðunin hafi verið skynsamleg og til þess fallin að koma í veg fyrir stórslys. „Það er nú þannig að ef tryggingafélag kemst í þrot má segja að það sé á margan hátt enn verra en ef banki fer niður. Þá getur komið upp sú staða að viðskiptavinir fái ekki greiddar út bætur sem þeir eiga inni. Eða iðgjöld þeirra séu ónýt og brenni inni í félaginu," segir Steingrímur. Steingrímur segir það hafa verið mat stjórnvalda að skellurinn af því að Sjóvá kæmist í þrot myndi mælast í tugum milljarða og trúlega lenda á ríkinu.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira