Enn hagrætt á leikskólasviði Reykjavíkurborgar Erla Hlynsdóttir skrifar 21. október 2010 13:20 Samkvæmt tillögu borgarstjóra verða framlög aukin til menningar- og ferðamálasviðs, til að mynda vegna tónlistar- og ráðstefnuhússins.
Enn verður hagrætt á leikskólasviði Reykjavíkurborgar samkvæmt tillögu Jóns Gnarr borgarstjóra um fjárhagsramma fyrir fagsvið Reykjavíkurborgar á næsta ári. Tillagan var lögð fram í borgarráði í dag. Í tilkynningu frá Birni Blöndal, aðstoðarmanni borgarstjóra, segir að lögð sé áhersla á að verja þjónustu við börn og ungmenni eftir fremsta megni. Þannig verða framlög til leikskólasviðs hækkuð vegna fjölgunnar barna á leikskólasviði. Þó þarf sviðið að taka á sig hagræðingu. Hann segir að við úthlutun ramma hafi verið lögð áhersla á það að verja velferðarsviði gegn hagræðingarkröfu vegna erfiðs ástands í þjóðfélaginu. Að auki var lögð áhersla á að verja þjónustu við börn og ungmenni eftir fremsta megni þó þeim málaflokki verði ekki með ekki með öllu hlíft. Til að mynda þýðir fjölgun barna á leikskólaaldri að hækka verður framlög til leikskólasviðs, en á móti þarf sviðið að taka á sig nokkra hagræðingu. Framlag til Menningar og ferðamálsvið verður hins vegar aukið vegna samningsskuldbindinga, til að mynd við Tónlistar- og ráðstefnuhús, en á móti tekur sviðið á sig nokkra hagræðingu Þetta er þriðja árið í röð þar sem lagður er fram fjárhagsrammi með hagræðingarkröfu. Halli á rekstri Reykjavíkurborgar er nú 4,5 milljarðar króna. „Óumflýjanlegt er að breyta stjórnkerfi, sameina starfsstöðvar og nýta húsnæði á fjölbreyttari og hagkvæmari hátt en nú er gert. Með því má ná fram miklum langtímasparnaði, sem er til heilla fyrir alla borgarbúa," segir í tilkynningu frá Birni. Heildarhagræðingarkrafa á fagsviðin er 1510 milljónir. Björn vill árétta að gerður er ríkur fyrirvari við úthlutun fjárhagsramma. Því enn liggur ekki fyrir endanlega útfærsla á fjárlögum ríksins eða skattalögum sem mun koma til með að hafa mikil áhrif á stöðu tekna og gjalda hjá Reykjavíkurborg. Skerðing á framlagi ríkisins til sveitarfélaga samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar þýðir auknar byrðar á Reykjvíkurborg sem nemur 845 milljónum króna. Það er með öllu óásætanlegt að velta þessum vanda yfir á sveitarfélögin á þessum erfiðu tímum. Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar mun fara þess á leit við ríkisstjórnina að þessi áform verði endurskoðuð. Á meðan ekki liggur fyrir hvort ríkisstjórnin endurskoðar afstöðu sína er óbrúað bil sem þarf að ná með auknum tekjum eða aukinni hagræðingu. Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar vonast til þess að ríkisstjórnin sjái að sér og komi til móts við Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög með endurgreiðslu hækkunar tryggingagjalds og framlagi til húsaleigubótakerfisins.
Mest lesið „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Innlent Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Innlent Fleiri fréttir Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Sjá meira