Innlent

Innbrot í þrjá sumarbústaði við Álftavatn

Brotist var inn í þrjá sumarbústaði við Álftavatn í Grímsnesi í vikunni , en þess varð fyrst vart í gærkvöldi.

Rúður voru brotnar í tveimur og hurð spennt upp í einum, til að komast inn, en þjófarnir unnu ekki spellvirki innandyra.

Þjófarnir stálu flatskjám, raftækjum, áfengi og fleiru lauslegu og eru þeir ófundnir. Bústaðirnir standa allir við sömu götu, skammt frá hverjum örðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×