Heróín- og morfínfíklum fækkar 22. október 2010 09:00 Þórarinn Tyrfingsson segir meðferð SÁÁ fyrir sprautufíkla hafa borið mikinn árangur
Heróín- og morfínfíkn var nær óþekkt á íslenskum meðferðarstofnunum fram til ársins 1998. En árið 1999 birtust allt í einu sjúklingar á Vogi sem voru að sprauta morfíni í æð. Þessum sjúklingum fjölgaði fram til ársins 2005 og úr varð mikill og alvarlegur vandi. „Um 200 ungir einstaklingar voru að leysa upp morfínforðatöflur sem ætlaðar voru krabbameins- og verkjasjúklingum utan sjúkrahúsa," útskýrir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi á vef SÁÁ. „Þeir náðu morfíni úr töflunum og sprautuðu sig með því í æð og nokkrir dóu." Flestir þeirra sem dóu voru fyrir illa veikir sprautufíklar sem höfðu notað amfetamín og kókaín til að sprauta sig lengi. Viðhaldsmeðferð fyrir sprautufíkla Tvennt stuðlaði aðallega að tilurð þessa vanda. Í fyrsta lagi óvarleg og mikil sala og ávísun morfínforðataflna til sjúklinga utan sjúkrahúsa. Í öðru lagi töldu fáeinir geðlæknar og heimilislæknar ranglega að það væri viðurkennd og góð læknisfræði að nota slíkar töflur til að hjálpa sprautufíklum sem voru háðir morfíni eða heróíni. „Þegar þessi vandi varð mönnum ljós var aðhald frá Landlæknisembættinu aukið. Á sama tíma kom til ný meðferð SÁÁ svokölluð viðhaldsmeðferð fyrir sprautufíkla sem eru háðir heróíni eða morfíni. Hvort tveggja þetta hefur gjörbreytt ástandinu og árangurinn undanfarin fjögur ár er stórgóður og athyglisverður," segir Þórarinn.Nú er það ritalínið Nú virðist það sama uppi á teningnum hvað ritalínvandann varðar. Þar stöndum við nú frami fyrir miklum vanda að mati Þórarins. „Í fyrsta lagi er það óvarleg og mikil sala og ávísun ritalíns. Í öðru lagi telja fáeinir geðlæknar og heimilislæknar að það sé viðurkennd og góð læknisfræði að nota slíkar töflur til að hjálpa örvandi vímuefnafíklum," segir Þórarinn og óskar eftir sömu viðbrögðum og við morfínfíkn. „Það þarf að auka aðhald að læknum og auka og bæta meðferð fyrir amfetamínfíkla á Íslandi," segir hann. Vefur SÁÁ.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Sjá meira