Bæjarráð fundaði um Landeyjahöfn 28. september 2010 12:50 Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman nú í hádeginu til að fjalla um málefni Landeyjahafnar en þangað verður ekki siglt á næstu dögum vegna sandburðar og gosefna úr Eyjafjallajökli. Dýpkunarskipið Perlan er væntanlegt úr slipp í næstu viku en ölduspá er ekki hagstæð til dýpkunar að sögn Siglingastofnunar og því má búast við að hreinsun innsiglingarinnar taki nokkurn tíma. Í ályktun bæjarráðs segir að þar á bæ hafi menn skilning á byrjunarörðugleikum siglinga í Landeyjahöfn. Bæjarráðið setti hinsvegar fram kröur í fimm liðum á fundinum í dag. Í fyrsta lagi mega samgöngur til Vestmannaeyja ekki rofna. Í siglingum til Þorlákshafnar verði þjónusta og áætlun að vera í samræmi við þá siglingaleið. Í þriðja lagi er áréttað að Landeyjahöfn sé aðalhöfn Herjólfs ásamt Vestmannaeyjahöfn og að allra leiða verði að leita til að opna Landeyjahöfn sem fyrst og tryggja að hún haldist opin. Tafarlaust verður að fá öflugan dælubúnað erlendis frá og/eða dýpkunarskip sem ræður við að athafna sig við þær aðstæður sem nú eru í Landeyjahöfn. Í fjórða lagi þarf tafarlaust að ráðast í hönnun og smíði nýs skips í stað þess sem nú siglir í Landeyjahöfn eins og áætlað var árið 2008. Í fimmta lagi þarf upplýsingastreymi í kringum Herjólf að batna þannig að farþegar séu upplýstir um framþróun mála og fái tafarlaust upplýsingar ef röskun verður á áætlun. Þá minnir bæjarráð einnig á að í raun sé Landeyjahöfn enn á framkvæmdarstigi. „Framkvæmdin var sem kunnugt er um 600 milljónum ódýrari en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir og því borð fyrir báru hvað kostnað við lokafrágang varðar." Ennfremur fagna Vestmannaeyingar yfirlýsingum Ögmundar Jónassonar samgönguráðherra þess efnis að Landeyjahöfn sé aðalhöfn Herjólfs ásamt Vestmannaeyjahöfn. „Sú skoðun er í samræmi við yfirlýsingar bæjarráðs og lítur bæjarráð svo á að í yfirlýsingu ráðherra felist fyrirheit um að allra leiða verði leitað til að vinna höfnina hratt og örugglega út úr byrjunarörðugleikum."
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira