Innlent

Um 25% barna fá sérkennsluúrræði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um 25% barna þurfa sérkennsluúrræði. Mynd/ Anton.
Um 25% barna þurfa sérkennsluúrræði. Mynd/ Anton.
Um 25% grunnskólanemenda á Íslandi nutu sérkennslu eða stuðnings á síðasta skólaári. Þetta voru tæplega 10.700 nemendur, samkvæmt tölum Hagstofunnar og var fjöldi þeirra nokkuð svipaður og skólaárið þar á undan. Hagstofan segir að eins og undanfarin ár njóti hlutfallslega flestir nemendur 4. bekkjar, sem eru níu ára gamlir nemendur, stuðnings eða 28,5% af árganginum.

Af þeim nemendum sem njóta stuðnings eru 61,2% drengir og 38,8% stúlkur. Drengjum sem njóta stuðnings fækkaði á milli ára en stúlkum fjölgaði. Fleiri nemendur fá stuðning í sérkennsluveri skólaárið 2009-2010 en árið áður en nemendum sem njóta stuðnings bæði í veri og bekk fækkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×