Innlent

Voru við hugvekju hjá Siðmennt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að hann, Katrín Jakobsdóttir, Árni Þór Sigurðsson og Mörður Árnason hafi ekki verið á meðal mótmælenda þegar að guðsþjónusta fór fram í Dómkirkjunni í dag. Vísir sagði í dag frá því að stjórnarþingmennirnir fjórir hafi verið á meðal mótmælenda.

Skúli segir hins vegar að þau hafi verið viðstödd hugvekju sem Siðmennt hélt á sama tíma og guðsþjónustan fór fram og þurft að ganga framhjá mótmælendum vegna þessa.




Tengdar fréttir

Þingmenn fara bakdyramegin inn í þinghúsið

Lögreglumenn á Austurvelli brýna það fyrir mótmælendum að halda sig innan þeirra marka sem þeim hefur verið sett. Geri þeir það ekki muni lögreglumenn beita piparúða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×