Innlent

Hrópa að Alþingi: „Út með ruslið!“

Símamynd: Vilhelm

Á annað þúsund manns eru við mótmælastöðu fyrir utan Alþingi þar sem þingfundur var settur fyrir stundu. Mótmælin fara að mestu friðsamlega fram. Einstaka mótmælandi átti í orðasennu við lögreglu en sjá mátti aðra mótmælendur ganga á milli ásamt því að mynda friðarmerki með fingrunum.

Mótmælendur hafa hrópað að Alþingi þar sem þingheimur er nú samankominn: „Út með ruslið."

Fjöldi mótmælenda hefur kastað húslyklum og bíllyklum að þinghúsinu til að undirstrika hversu stór hluti almennings hefur ekki lengur afnot af húsum sínum og bifreiðum.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heldur setningarræðu sína þessa stundina inni á Alþingi.

Fylgjast má með beinni útsendingu frá Alþingi hér á Vísir.is














Fleiri fréttir

Sjá meira


×