Innlent

Lögreglumenn skora á Alþingismenn

Lögreglufélag Austurlands hvetur Alþingismenn til að nýta sér þekkingu annarra þjóða í þeirri erfiðu vinnu sem endurreisn efnahagskerfisins er, og minnast þess að það er hroki að halda að við vitum og kunnum alla hluti betur en aðrir.

Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar félagsins þar sem rifjað er upp að erlendar vinaþjóðir, með reynslu af enfahagsþrengingum, hafi bent okkur á að skera ekki niður framlög til löggæslu og félagslegra úrræða, eins og nú sé verið að gera hér.

„Lögreglufélag Austurlands harmar þá stefnu stjórnvalda að veikja framkvæmdavald sitt með þeim hætti sem nú er gert þrátt fyrir aðvaranir annarra þjóða," segir einnig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×