Slegist um málverk 23. desember 2010 19:04
Mikil ásókn er í olíumálverk eftir Eggert Pétursson en það er nú í eigu þrotabús VBS fjárfestingabanka, sem hefur auglýst það til sölu. Verkið er metið á margar milljónir. Slitastjórn VBS fjárfestingabanka hefur auglýst eftir tilboðum í olíuverk eftir Eggert Pétursson. Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa aflaði í dag eru sambærileg verk eftir listamanninn metin á 3-4 milljónir króna. „Í okkar huga er þetta ein af perlum íslenskrar myndlistar á Íslandi og það hafa margir sýnt þessu áhuga og við vildum hafa ferlið gegnsætt þannig að flestir gætu komist í það að gera boð ef þeir hafa áhuga," segir Þorsteinn Ólafs framkvæmdastjóri VBS. Og hvað hafa mörg tilboð borist? „Nokkur, og höfðu það líka áður en við auglýstum. Okkar vinna hér er að hámarka eignir bankans og þetta er ein leiðin." Slitastjórn VBS undirbýr riftunarmál og íhugar að höfða skaðabótamál gegn fyrrverandi stjórnendum bankans, en vinnur líka að sölu á lausamunum úr þrotabúinu. „Við erum að koma þeim í verð sem við erum ekki að nota í dag, riftunarmál eru í ferli og þeim á eftir að fjölga mikið og það eru mikið stærri tölur," segir Þorsteinn. Frestur til að skila inn tilboði í málverkið rennur út í lok næstu viku. Eru þetta viðunandi tilboð sem eru að berast? „Það hafa borist sæmileg tilboð en við viljum sjá eitthvað meira."
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Sjá meira