Fljótandi amfetamín fannst í farangrinum 19. mars 2010 06:00 keflavíkurflugvöllur Maðurinn var tekinn af tollgæslu með fljótandi amfetamín.
Tveir menn sitja nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við innflutning nær eins lítra af fljótandi amfetamíni til landsins. Samkvæmt útreikningum sem gerðir hafa verið hefði efnið skilað tæpum sex kílóum af amfetamíni í neyslupakkningar á götuna, að því er upplýsingar Fréttablaðsins herma. Upphaf málsins má rekja til þess að pólskur karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í lok janúar á þessu ári. Hann var þá að koma til landsins frá Kaupmannahöfn. Tollverðir leituðu í farangri mannsins og kom í ljós að hann var með flösku fulla af fljótandi amfetamíni. Hann var handtekinn í kjölfarið og úrskurðaður í gæsluvarðahald til 29. mars. Nú í vikunni handtók lögreglan svo annan mann, einnig pólskan, sem talinn er tengjast málinu. Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. mars. Maðurinn sem tekinn var með amfetamínvökvann hefur ekki dvalið hér á landi, svo vitað sé, en hinn sem handtekinn var nú í vikunni hefur dvalið hér í einhvern tíma. Hann er einnig á þrítugsaldri og hefur komið við sögu lögreglu hér. Lögreglan á Suðurnesjum vinnur að rannsókn málsins. - jss
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Fleiri fréttir „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið Sjá meira