Íslenski skálinn slær í gegn í Sjanghæ 7. júní 2010 06:00 Gestir heimssýningarinnar í röð við íslenska skálann.
Heildarfjöldi gesta íslenska skálans á heimssýningunni í Sjanghæ í Kína fór fram úr fjölda Íslendinga fyrir viku en alls höfðu 356.219 manns heimsótt skálann þá. „Viðtökurnar við íslenska skálanum hafa verið framar öllum vonum. Við vissum að við værum með góða afurð í höndunum en hér er fullt hús alla daga. Ég held ég geti slegið því föstu að hingað muni alls koma tvær milljónir Kínverja,“ sagði Hreinn Pálsson framkvæmdastjóri þátttöku Íslands í heimssýningunni og aðalræðismaður Íslands í Kína. Íslenski skálinn er eins og ísmoli í laginu og er honum ætlað að skapa ímynd jökuls. Notaðar eru ljósmyndir af íslenskum jökulís í nærmynd þannig að greinilega má sjá smáatriðin í ísnum. Inni í skálanum er lofthiti mun lægri en venja er innandyra í Sjanghæ og þar er að finna íslensk fjallagrös til að gefa gestum skálans þá tilfinningu að þeir séu skyndilega komnir til Íslands. Átta mínútna stuttmynd um Ísland er varpað á veggi og loft skálans og eru gestirnir því umluktir myndum og hljóði. „Þetta myndband okkar er bara listaverk. Á tveimur eða þremur stöðum í myndbandinu heyrir maður gesti skálans yfirleitt segja vá. Við erum nú farin að venjast þessu en ég hef ekki séð neitt þessu líkt í öðrum skálum,“ sagði Hreinn. Aðspurður um hvaða ástæður hann héldi að væru fyrir þessum viðtökum sagði Hreinn að fréttir frá Íslandi um efnahagsmál og eldgosið spiluðu inn í en þar fyrir utan hefðu þau notið góðs af því að Ísland ber ótrúlega lýsandi nafn í kínversku, Bingdao, sem þýðir íseyjan. „Þegar gestir sýningarinnar ganga framhjá skálanum og sjá ísmyndirnar þá vita þeir strax hvaða þjóð á þennan skála. Það má því segja að við höfum einkenni sem margar aðrar þjóðir skortir.“- mlþ
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Innlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Kona mannsins sem lést þungt haldin Innlent Fleiri fréttir Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Væri örþrifaráð að ræsa Bubba út á ný áratug seinna Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent