Fiskur alinn á korni 7. júní 2010 05:30 Hold beitarfisksins er ekki bragðmikið sem hentar vel til matreiðslu fjölda rétta. Það skýrir vinsældir auk þess sem hann er mun ódýrari en margur annar hvítfiskur.FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Til stendur að hefja hlývatnseldi á svokölluðum beitarfiski á Flúðum. Tegundin er afar vinsæll matfiskur víða um heim og er um stærstu fiskeldistegund heims að ræða. Eldið er hluti af uppbyggingu á orkufrekum matvælaiðnaði á svæðinu. Hrunamannahreppur, Íslensk matorka ehf. og Matís ohf. undir-rituðu í síðustu viku viljayfirlýsingu um uppbyggingu á Flúðum sem meðal annars felur í sér eldi á tílapíu, hvítum matfiski sem kallaður er beitarfiskur hérlendis. Tegundin er orðin stærsta eldis-tegund heims en milljónir tonna eru komnar inn á markaði, og eru Kínverjar þar stærstir. Stefanía Katrín Karlsdóttir, forsvarsmaður hjá Íslenskri matorku, segir möguleikana mikla. Áhugi sé á að vinna með innlendum ræktendum til að vinna fóður fyrir fiskinn. „Fóðrið sem fyrir er á markaðnum er dýrt og hugsað fyrir laxfiska. Það er til dæmis verið að rækta repju með góðum árangri og í Árnessýslu eru ræktaðar prótínríkar baunir sem gætu nýst okkur.“ Til að fóðra beitarfisk með góðum árangri þarf fóðrið að innihalda ákveðinn hluta af prótíni og kolvetnum, og ýmsar korntegundir henta því til eldisins. Eldið byggir á nýtingu á volgu vatni sem nóg er af á Flúðum. „Á Flúðum var borað fyrir köldu vatni en það skilar sér volgt vegna þess að berglögin hita það upp. Hitastig vatnsins hentar afar vel til eldis á beitarfiski og það má því segja að volga kaldavatnið á Flúðum hafi vakið áhuga okkar.“ Annað sem skiptir miklu máli er hversu hraðvaxta fiskurinn er. Beitarfiskur vex frá seiði upp í sláturstærð á aðeins sex mánuðum. Til samanburðar tekur 27 mánuði að ala bleikju í sláturstærð og þorsk allt að því fjögur ár. Beitarfiskur keppir víða við þorsk á hvítfiskmörkuðum, svo forskotið dylst engum. Unnar hafa verið prófanir á bragði, geymslu og fóðrun beitarfisks hjá Matís. Stefanía segir að geymsluþolið sé gott og því henti fiskurinn vel ferskur á Evrópumarkað. „Það er okkar forskot á fiskinn frá Kína því hann kemst ekki ferskur á þann markað nema með miklum tilkostnaði.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Enn tekist á um þingstörfiin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart Sjá meira