Þverpólitísk kvikmyndahátíð 9. mars 2010 03:30 Kvikmyndahátíð Græna ljóssins verður þverpólitísk. Síðasta kvikmynd Heaths Ledger verður að öllum líkindum sýnd sem og Fantastic Mr. Fox og Hvíti borðinn.
Græna ljósið blæs til mikillar kvikmyndaveislu í Regnboganum. Hátíðin stendur í þrjár vikur og hefst 16. apríl. „Við ætlum að leggja Regnbogann undir okkur og þar verða engar aðrar myndir sýndar en kvikmyndir Bíódaga," segir Ísleifur B. Þórhallsson, skipuleggjandi hátíðarinnar. Ísleifur segir „þverpólitíska" sátt vera að myndast milli dreifingaraðila kvikmynda á Íslandi því bæði Sena og Myndform ætla að leggja til kvikmyndir og þá hefur Ísleifur verið í sambandi við Sam-film um að þeir komi einnig að kvikmyndahátíðinni. Ísleifur segir að þeir hafi valið myndirnar á hátíðina af kostgæfni og verið tiltölulega harðir við sjálfa sig. „Við ætlum okkur að hafa mjög háan gæðastuðul og við erum búnir að henda út fullt af myndum sem komu til greina," segir Ísleifur. Blásið verður til mikils teitis 16. apríl þar sem boðið verður upp á óvissusýningu í hverjum sal og svo heljarinnar partí eftir að sýningu lýkur. Meðal þeirra kvikmynda sem verða að öllum líkindum teknar til sýningar má nefna Imaginarium of Dr. Parnassus en það er síðasta myndin sem Heath Ledg-er lék í. Þá er líklegt að teiknimyndin Fantastic Mr. Fox verði einnig sýnd, en hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta teiknimyndin í ár. Til gamans má geta að George Clooney og Meryl Streep tala fyrir Fox-hjónin. Þá bendir allt til þess að heimildarmyndin Videocracy verði tekin til sýningar, en hún segir frá ótrúlegri frægðarmannadýrkun á Ítalíu, og svo austurríska kvikmyndin Das weisse Band eða Hvíti borðinn sem vann aðalverðlaunin í Cannes og var tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár í flokknum besta erlenda myndin. - fgg
Mest lesið Bob Mackie er látinn Lífið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira