Innlent

Alda Hrönn verður saksóknari hjá ríkislögreglustjóra

Valur Grettisson skrifar
Alda Hrönn Jóhannsdóttir.
Alda Hrönn Jóhannsdóttir.

Dómsmálaráðherra hefur sett Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, staðgengil lögreglustjórans á Suðurnesjum, í embætti saksóknara hjá ríkislögreglustjóra frá og með 25. október 2010 vegna leyfis skipaðs saksóknara Helga M. Gunnarssonar.

Hann hefur tekið til starfa sem varasaksóknari Alþingis og mun sækja mál fyrir Landsdómi.

Þá hefur ríkislögreglustjóri ráðið Einar Tryggvason og Eyjólf Ármannsson sem aðstoðarsaksóknara.

Ríkislögreglustjóri hefur ráðið nýja starfsmenn og fjölgað starfsmönnum efnahagsbrotadeildar sem nú eru 15. Gert er ráð fyrir frekari fjölgun samkvæmt tilkynningu frá embættinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×