Sláturbólan landlæg í kindum 25. október 2010 02:00 Veirusýkingin getur valdið talsverðum óþægindum meðan hún er að ganga yfir. „
Þessi veirusýking sem kölluð er sláturbóla, smitast af lifandi sauðfé og af sláturdýrum,“ segir Katrín Andrésdóttir, héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis, sem kveðst hafa fengið staðfestingu á því að óvanalega mikið sé um þessa veirusýkingu í fólki þessa dagana. Fréttablaðið greindi frá því fyrir helgi að óvenjumargir hefðu leitað á heilsugæsluna á Selfossi vegna sýkingarinnar. Er um að ræða starfsfólk í sláturhúsum sem hefur þá smitast við störf sín. Katrín undirstrikar að þótt veirusýkingin leggist á fé og geitur þá sé ekki minnsta hætta á að hún smitist eða berist með kjöti. „Sláturbólan sést oft á fólki í sauðburði á vorin,“ segir Katrín. „Þá er algengt að rúningsmenn fái hana svo og starfsfólk í sláturhúsum. Veiran lýsir sér sem frunsur á lömbum og getur einnig farið í klaufhvarfið á fé og þá valdið tjóni ef sýkingar myndast. Þessi sjúkdómur hefur verið landlægur í kindum og geitum, en við höfum enga skýringu á þessu að því er virðist aukna smiti í fólki. Sá sem hefur þó einu sinni fengið sláturbólu fær hana ekki aftur, því fólk myndar mótefni gegn veirunni.“- jss
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Fleiri fréttir Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Sjá meira