Innlent

Fjarskiptasjóður er að ljúka verki sínu

Gunnar Svavarsson, fyrrverandi þingmaður, sést hér með Kristján Þór Júlíussyni. Gunnar er stjórnarformaður Fjarskiptasjóðs.
Gunnar Svavarsson, fyrrverandi þingmaður, sést hér með Kristján Þór Júlíussyni. Gunnar er stjórnarformaður Fjarskiptasjóðs. Mynd/GVA

Lög um Fjarskiptasjóð gera að verkum að hann getur ekki styrkt verkefni á borð við ljósleiðaratengingu Öræfasveitar. Við jaðar útbreiðslusvæðis Fjarskiptafélags Öræfinga kunna hins vegar að vera staðir sem falla undir styrkhæfar aðgerðir sjóðsins.

Gunnar Svavarsson, stjórnarformaður Fjarskiptasjóðs, segir framtak Fjarskiptafélags Öræfinga stórglæsilegt. „Hins vegar byggja öll verkefni sem sjóðurinn getur styrkt á þeim grunni að markaðurinn leysi þau ekki sjálfur. Fjarskiptafélag Öræfinga leysir þannig vandamál ákveðins fjarskiptasvæðis," segir Gunnar og bætir við að Fjarskiptasjóður eigi svo að leysa mál sem út af standa. „Ef þetta félag hefði ekki leyst þetta með ljósleiðara þá hefði Fjarskiptasjóður komið að með sama hætti og verið er að ljúka við að gera hjá 1.800 sveitabæjum á landinu."

Gunnar segir nú verið að loka síðustu svæðum og verkinu ljúki á haustmánuðum. „Og þá er eiginlega hringnum lokað og þetta verkefni sem sett var af stað með Fjarskiptasjóði árið 2005 fullnustað á þessu ári og sjóðurinn þá væntanlega lagður niður í kjölfarið. Hann er þá búinn að GSM-væða þjóðvegina og helstu ferðamannastaði og búinn að háhraðatengja þá staði sem fjarskiptafyrirtækin náðu ekki að tengja."

Gunnar segir að 14 til 15 fjarskiptafyrirtæki starfi á landinu. „Og samkvæmt lögunum megum við ekki fara inn á þeirra markaðssvæði," segir hann, en kveður um leið ekki útilokað að smærri fjarskiptafélög geti sótt styrki til uppbyggingar annars staðar, svo sem í gegn um nýsköpunarverkefni á vegum stjórnvalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×