Vilja tvo stóra dómsali í húsi Silla og Valda 24. nóvember 2010 05:15 Héraðsdómur Reykjavíkur mun breiða úr sér í miðborginni þegar hluti starfsemi hans færist yfir í Austurstræti 17. Húsið er í dag oft kennt við 10-11 enda slík verslun á jarðhæðinni. Lengst af var það nefnt eftir kaup- og athafnamönnunum Silla og Valda sem létu reisa það og ráku í því verslun. Ferðaskrifstofan Útsýn var lengi á annarri hæðinni. Húsið var tekið í gagnið 1965. Mynd/GVA
Lausn á hluta húsnæðisvanda Héraðsdóms Reykjavíkur er í augsýn. Í bígerð er að dómurinn leigi eina hæð í Austurstræti 17 og leysi með því þörfina fyrir bætta starfsaðstöðu dómara, aðstoðarmanna og dómritara. Húsið er sambyggt húsi Héraðsdóms við Lækjartorg. Er ætlunin að opna á milli húsanna enda augljósir kostir því samfara. Nauðsyn stærri húsakosts dómsins helgast af stórauknu álagi eftir fall bankanna. Er fyrirséð að mörg dómsmál, stór og smá, verði höfðuð vegna hrunsins. Þegar hefur fjöldi mála borist vegna ágreinings um kröfur í bú bankanna og ljóst að slíkum málum mun fjölga. Þá eru yfirvofandi stór mál í framhaldi af rannsóknum sérstaks saksóknara. Til að mæta auknu álagi dómsins hefur dómurum verið fjölgað og samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra á að fjölga þeim enn frekar. Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, segir að húsnæðið í Austurstræti muni mæta þörfinni fyrir skrifstofur en eftir standi vandi varðandi dómsali. Hans mat sé að þörf verði fyrir tvo nýja sali sem þyrftu að vera stærri en stærsti salur dómsins í dag, salur 101. „Það liggur svo sem ekki fyrir hvað margir verða í hverju máli en það þarf að vera aðstaða fyrir verjendur og sakborninga og svo má gera ráð fyrir að það verði einhver fjöldi áhorfenda. Það þarf líka að koma til móts við þær þarfir," segir Helgi. Helgi I. Jónsson Aðspurður segir hann ekkert liggja fyrir um hvar viðbótardómsalirnir geti verið. Nú verði farið að horfa til þess. Hentugt væri að hafa þá í miðborginni, nærri höfuðstöðvum dómsins. Útlit er fyrir að þörf verði fyrir nýju dómsalina tvo á síðari hluta næsta árs. Nú starfa 25 dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur. Fleiri bætast við, verði frumvarp dómsmálaráðherra að lögum. Er enn frekari fjölgun dómara áformuð þegar fram í sækir. Helgi segir að þegar stóru málin frá sérstökum saksóknara komi til meðferðar kalli það á að margir dómarar verði uppteknir í einu máli í marga mánuði. Þeir sinni ekki öðru á meðan. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira