Ósáttur við lögreglu eftir bílslys Karen Kjartansdóttir skrifar 29. ágúst 2010 18:45
Foreldrar ungs manns sem lenti í bílsslysi á Reykjanesbraut á föstudag heyrðu fyrst af slysinu í símtali frá vini hans klukkutíma síðar. Þeir gagnrýna að lögreglan hafi ekki tilkynnt þeim um atburðinn. Bílslysið átti sér stað á vinnusvæði við Reykjanesbraut um áttaleytið á föstudag í Keflavík. Tveir ungir menn voru í bílnum. Beita þurfti klippum til að þeim úr flaki bílsins. Páll Árnason, faðir annars mannsins eru mjög ósáttur við að lögreglan hafi ekki komið boðum til þeirra um að sonur þeirra hafi lent í slysi, þótt hann sé oðrinn nítján ára og teljist því ekki lengur barn. Fjölskyldan hafi ekki heyrt af atburðinum fyrr en vinur sonar þeirra hringdi í yngra barn þeirra um það bil klukkustund eftir að slysið varð til að spyrja hve illa mennirnir hefðu slasast. „Okkur brá mjög mikið því við höfðum ekkert heyrt af þessu. Yngir sonur okkar hleypur út á sjúkrahúsið sem er hérna skammt frá. Þar hittir hann sjúkraflutningamann sem sagði að hann hefði verið fluttur beint á sjúkrahús í Reykjavík. Nú eru tveir sólarhringar liðnir frá því slysið varð og lögreglan hefur enn ekki haft samband við okkur," segir Páll. En betur fór en áhorfðist og eru báðir mennirnir komnir heim til sín en báðir eru þeir lemstraðir eftir veltuna. Páll er fyrrverandi lögreglumaður og segir hann að í sinni tíð hefði þótt nauðsynlegt að tilkynna ættingjum um slys sem þessi. „Dóttir okkar fór eftir miðnætti þetta kvöld og hitti á lögreglumann sem kom á vettvang og hann sagði að þeir hefðu bara verið að vinna og hefðu því ekki haft tíma til að hafa samband við einn eða neinn." Páll segir að í sinni tíð hafi það verið partur af vinnunni að hafa samband við ættingja þegar slys urðu. Í samtali við fréttastofu sagði lögregluþjónn á Suðurnesjum að almenna reglan væri alltaf sú að tilkynna ættingjum um slys. Hann þekkti ekki til þessa einstaka máls en sagðist þykja leitt ef einhver mistök hafi orðið.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira