IP-staðlar betri lausn í flugi 11. október 2010 05:00 Þota Icelandair hefur sig á loft frá Keflavíkurflugvelli. Vélar félagsins í áætlunarflugi milli landa tóku þátt í að prófa nýja samskiptatækni við flugumferðarstjórn í síðasta mánuði. Fréttablaðið/Heiða
Upplýsingatækni Fyrstu raunprófanir heims á notkun internetstaðla (VoIP) í samskiptum flugumferðarstjórnar við flugvélar áttu sér stað hér á landi í nýliðnum mánuði. „Ég geri ráð fyrir því að eftir nokkur ár verði þessi tækni orðin allsráðandi í heiminum,“ segir Hörður Arilíusson flugumferðarstjóri, sem vann að prófunum. Að verkefninu standa Isavia, sem sér um alla flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugumferðarsvæðinu, og fyrirtækin Frequentis og Northrop Grumman Park Air Systems. VoIP er sú tækni sem notuð er til gagnasendinga yfir internetið. Slík tækni hefur hins vegar ekki verið tekin í gagnið í samskiptum í flugiðnaði þar sem unnið er að því að sýna fram á að hún standist alla staðla um öryggi og gæði í flugi. Prófanirnar sem fram fóru hér á landi eru þær fyrstu í heiminum samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum staðli Euroace (Evrópusamtaka um staðla í flugtækjabúnaði). Um borð í flugvélunum er notast við hefðbundna talstöðvartækni, en nýjungin felst í því að samskiptin eru flutt yfir netið frá móttökustöð í landi og til flugumferðarstjórnarinnar. „Við settum upp platform þar sem við vorum með á einu neti bæði þessi hefðbundnu radíó sem við erum að nota í dag og svo þessa nýju IP-tækni,“ segir Hörður og kveður sex móttökustaði fyrir sendingar hafa verið prófaða. „Þetta prófuðum við síðan á móti lifandi umferð. Þeir voru svo almennilegir hjá Icelandair að áhöfn hjá þeim var í stöðugu sambandi við okkur allt frá flugtaki í Keflavík og þar til hún hvarf úr radíódragi nálægt Færeyjum.“ Hörður segir prófanirnar hafa tekist vel og niðurstöðurnar lofi afar góðu varðandi upptöku IP-staðla í samskiptum flugstjórnar og flugvéla. Þannig hafi til dæmis samtöl sem send voru um netið heyrst betur, án allrar bjögunar og truflana. „Það er nú bara eins og þú sért hérna inni í klefanum hjá okkur, sagði til dæmis einn flugstjórinn,“ bætir Hörður við. Helsta kostinn við nýja tækni segir Hörður samt vera minni kostnað, sem ætti að skila sér í lægri fargjöldum á heimsvísu. Netstaðla segir hann í notkun alls staðar í heiminum og því sparist heilmikið við uppsetningu á tækjabúnaði. „IP-netin eru til úti um allt, en við höfum bara ekki mátt fara inn á þau út af því að ekki var fullreynt hvort þau væru nógu örugg. Þessar prófanir sýna fram á að öryggið er nægt.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira