Innlent

Lítill órói við gosstöðvarnar

Mynd/Pjetur
Lítill órói hefur verið gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi síðastliðinn sólarhring og jarðskjálftar hafa verið afar fáir, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Veðurstofunni.

Lögreglan á Hvolsvelli segir veður slæmt í grennd við gosstöðvarnar og varar fólk eindregið við því að vera á ferð. Mikill krapi er á Mýrdalsjökli sem er illfær. Þá hafa verið miklir vatnavextir í ám í Þórsmörk bæði vegna úrkomu og bráðnunar frá eldgosinu.

Veðurstofan spáir því að heldur hægari vestanátt og að það muni stytta upp í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×