Innlent

Samkomulag um skipan samninganefndar

Heimir Már Pétursson skrifar
Samkomulag um skipulag á skipun samninganefndar náðist í gær. Mynd/ Anton
Samkomulag um skipulag á skipun samninganefndar náðist í gær. Mynd/ Anton

Stjórn og stjórnarandstaða komust í gærkvöldi að samkomulagi um hvernig staðið verði að skipan samninganefndar Íslands, fáist Bretar og Hollendingar aftur að samningaborðinu um Icesave.

Formenn stjórnarflokkanna áttu fund með forystufólki stjórnarandstöðunnar í gærkvöldi. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra greindu frá því að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun að ríkisstjórnin hefð verið í sambandi við æðstu ráðamenn í Bretlandi og Hollandi um möguleikana á nýjum samningaviðræðum. Eins hefði verið talað við embættismenn og áhrifaaðila innan Evrópusambandsins. Þau ítrekuðu að það lægi alls ekki fyrir hvort þessir aðilar væru tilbúnir til nýrra samninga.

Forsætisráðherra sagðist vona að það lægi fyrir í dag eða á morgun hvort að nýjum saningaviðræður gæti orðið. Á fundi forystumannanna í gærkvöldi hafi verið settar á blað reglur um það hvernig staðið yrði að skipan nýrrar samninganefndar. Gert væri ráð fyrir að nefndin yrði leidd af þremur aðilum, þar af einum erlendum fulltrúa.

Forsætisráðherra vildi ekki segja neitt um hver það gæti orðið, en þar hefur meðal annars verið rætt um Joschka Fischer fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×