Asó-litarefni einungis í gulum, appelsínugulum og rauðum Powerade Sunna Valgerðardóttir skrifar 27. október 2010 15:13 Mynd: Timesunion
Þorsteinn M. Jónsson, stjórnarformaður Vífilfells, fullyrðir að Powerade íþróttadrykkir sem Vífilfell er með umboð fyrir hér á landi, innihaldi ekki svokölluð Asó-litarefni (e. Azo). Fréttablaðið birti í dag grein á forsíðu um atvik sem átti sér stað þegar Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræðum, drakk flösku af bláum Powerade fyrir íþróttaleik og mjólkaði grænni brjóstamjólk í kjölfarið. Fréttin fjallaði einnig um möguleg áhrif svokallaðra Asó-litarefna á börn og að Neytendasamtökin vildu fá efnin af markaði hér á landi. Ekki var gætt fyllstu nákvæmni við vinnslu fréttarinnar í Fréttablaðinu, þar sem litarefnið sem gefur Powerade Mountain Blast hinn bláa lit, Brilliant Blue FCF eða FD&C Blue No. 1 (e-133), er ekki flokkað sem asó-litarefni. Leiðréttist það hér með. Hins vegar er Brilliant Blue FCF bannað í fjölda Evrópulanda, þar á meðal Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Samkvæmt grein eftir David W. K. Acheson, yfirlækni á matvælaöryggissviði Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA), sem birtist á heimasíðu eftirlitsins, getur neysla á Brilliant Blue FCF orsakað bláan lit í húð, blóðvökva, þvagi og saur. Samkvæmt FDA geta einnig alvarlegri fylgikvillar fylgt neyslu á litarefninu. Vífilfell er með umboð fyrir þrjár aðrar tegundir af Powerade hér á landi; Powerade Orange, Powerade Citrus Charge og Powerade Cherry. Allar tegundirnar innihalda þau litarefni sem flokkuð eru af Evrópuþinginu sem Asó-litarefni (e104 eða e122). Í júlí 2008 ákvað Evrópuþingið að merkja bæri öll þau matvæli sem innihalda eitthvað af þeim efnum sem flokkuð eru sem Asó-litarefni. Þær vörur beri að merkja skýrt þar sem efnin geta mögulega verið skaðleg börnum. Löggjöfin hefur þó enn ekki náð hingað til lands. Tenglar: Grein David K. Acheson, yfirlæknis hjá FDA, Ályktun Evrópuþingsins um asó-litarefni frá 2008
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira