Þöglir dómarar - aðeins tveir svara Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. október 2010 19:46
Aðeins tveir dómarar við Hæstarétt Íslands eru tilbúnir að svara fyrirspurn fréttastofu um hvort þeir séu með gengistryggt lán. Þetta eru Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson, en hvorugur þeirra er með slíkt lán. Hinn 6. ágúst síðastliðinn sendi fréttastofa Stöðvar 2 öllum dómurum við Hæstarétt Íslands fyrirspurn og vísaði sérstaklega til dóms Hæstaréttar frá 16. júní síðastliðnum þegar gengistryggð lán voru dæmd ólögmæt í Hæstarétti. Dómurinn hafði gríðarlega mikil áhrif á samfélagið í heild sinni enda öll gengistryggð lán dæmd ólögleg í einu og enn er víða ágreiningur um hvaða samningar falli undir dóminn og hvernig eigi að gera þá upp. Fyrirspurnin var svohljóðandi: Vísað er til þess háttar samnings sem dæmt var um í máli nr. 153/2010. Í samningnum var ákvæði um að hann væri gengistryggður og að allar fjárhæðir væru bundnar erlendum/innlendum myntum í ákveðnum hlutföllum og tækju mið af þeim á hverjum tíma. Eru einhverjir dómarar með gengistryggð lán, eins eða sambærileg þeim sem dæmt var um í framangreindu máli? Fréttastofa fékk staðfestingu á því að fyrirspurnin hefði verið send á dómarana sem um ræðir, en þeir eru alls níu talsins. Nú eru rúmir tveir mánuðir liðnir frá því fyrirspurnin var send, en aðeins tveir dómarar hafa svarað. Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson, þeir svöruðu báðir skriflega, en hvorugur þeirra sagðist vera með slíkt lán. Þeir sem ekki svöruðu voru Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Ingibjörg Benediktsdóttir, Markús Sigurbjörnsson og Páll Hreinssonm, en Viðar Már Matthíasson hafði ekki verið skipaður dómari þegar fyrirspurnin var send auk þess sem hann hafði ekki tekið sæti í Hæstarétti hinn 16. júní á þessu ári.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira