Ingibjörg Sólrún á meðal fundarmanna 4. desember 2010 15:54 Ingibjörg Sólrún var meðal fundarmanna á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Hún tók ekki til máls á fundinum. Ingibjörg var varaformaður Samfylkingarinnar 2003-2005 og formaður 2005-2009.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, var meðal fundargesta á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fer fram á Hótel Loftleiðum í dag. Umfjöllunarefni fundarins eru tillögur umbótanefndar flokksins en nefndin var skipuð í aprílmánuði til að fara yfir starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. Ingibjörg tók ekki til máls en hún hefur nú yfirgefið fundinn. Fyrr á árinu hélt Ingibjörg tilfinningaþrungna ræðu á fundi flokksstjórnar Samfylkingarinnar. Þá sagðist hún hafa brugðist sjálfri sér og kjósendum flokksins. Undir lok ræðunnar táraðist Ingibjörg þegar hún kvaddi flokksmenn og sagðist ætla að stíga léttstíga á brott inn í kalt og fallegt vorið. „Þannig að þið getið haldið vinnunni og uppgjörinu áfram ótrufluð af minni nærveru. Og þá er ekkert eftir annað en að þakka fyrir sig. Takk." Veikleikar afhjúpaðir Umbótanefndin hefur nú lagt fram skýrslu sína. Nefndin kemst að þeirri meginniðurstöðu að bankahrunið og ríkisstjórnarþátttaka Samfylkingarinnar afhjúpi veikleika í starfi flokksins sem mikilvægt sé að takast á við eigi flokkurinn áfram að gegna leiðandi hlutverki í íslenskum stjórnmálum. Tillögum umbótanefndarinnar er skipt í sex kafla og er hægt að skoða þær hér.Ánægja með skýrslu umbótanefndarinnar Fjölmargir flokksmenn hafa stigið í pontu og tekið þátt í umræðum um niðurstöður nefndarinnar og hafa flestir lýst yfir mikilli ánægju með plaggið. Einhverjir fundarmenn hafa bent á að andstæðingar Samfylkingarinnar muni nota þá sjálfsgagnrýni sem fram komi í skýrslu umbótanefndarinnar til að koma höggi á flokkinn. Enn aðrir hafa bent á að það skipti ekki máli og að tilgangur með stofnun nefndarinnar hafi verið að auðvelda Samfylkingarinnar að taka á innri málum og styrkja þannig stefnumótun flokksins til framtíðar. Þá hefur verið bent á að tillögur umbótanefndarinnar um að banna opin prófkjör og allar auglýsingar stangist á við núverandi lög flokksins sem verði ekki breytt nema á landsfundi. Að öllu óbreyttu verður næsti landsfundur Samfylkingarinnar haldinn haustið 2011.
Tengdar fréttir Stjórnarþátttakan afhjúpar veikleika flokksins Umbótanefnd Samfylkingarinnar kemst að þeirri megin niðurstöðu í skýrslu sem lögð er fyrir flokksstjórn í dag að bankahrunið og ríkisstjórnarþátttaka flokksins afhjúpi veikleika í flokksstarfinu. Varaformaður flokksins segir að ábyrgðin á bankahruninu megi ekki einskorðast við þá einstaklinga sem stóðu í eldlínunni á tíma hrunsins. 4. desember 2010 12:12 Samfylkingin biðji þjóðina afsökunar Samfylkingin biður þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem hún beri ábyrgð á í aðdraganda hrunsins. Jafnfram heitir flokkurinn því að hlusta með opnum huga á gagnrýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig. Þetta kemur fram í ályktun sem liggur fyrir flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fram fer á hótel Loftleiðum í dag og verður væntanlega samþykkt síðdegis. 4. desember 2010 15:07 Stjórnmálaflokkum verði bannað að auglýsa í sjónvarpi Samfylkingin hefur brennt sig illa á því að sækjast eftir og þiggja fé af einstökum fyrirtækjum og fjársterkum hagsmunaaðilum. Það er ljóst að flokkurinn hefur gert afdrifarík og alvarleg mistök með því að láta viðgangast að frambjóðendur öfluðu fjár frá fyrirtækjum, og jafnvel hvetja til þess. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar og lögð var fyrir flokksstjórn Samfylkingarinnar fyrr í dag. Nefndin leggur til að flokkurinn beiti sér fyrir því að sjónvarps- og útvarpsauglýsingar stjórnmálaflokka verði bannaðar í aðdraganda kosninga. 4. desember 2010 13:39 Ráðherrar sagðir í engum tengslum við flokkinn „Starf ráðherra er í litlum eða engum tengslum við flokkinn. Ráðherrar Samfylkingarinnar hafa engar skyldur um að standa skil á embættisfærslum sínum gagnvart eigin félögum og flokksmenn hafa engar formlegar leiðir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra flokksins,“ segir í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar sem lögð var fyrir flokksstjórn flokksins í hádeginu. 4. desember 2010 13:16 Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira
Stjórnarþátttakan afhjúpar veikleika flokksins Umbótanefnd Samfylkingarinnar kemst að þeirri megin niðurstöðu í skýrslu sem lögð er fyrir flokksstjórn í dag að bankahrunið og ríkisstjórnarþátttaka flokksins afhjúpi veikleika í flokksstarfinu. Varaformaður flokksins segir að ábyrgðin á bankahruninu megi ekki einskorðast við þá einstaklinga sem stóðu í eldlínunni á tíma hrunsins. 4. desember 2010 12:12
Samfylkingin biðji þjóðina afsökunar Samfylkingin biður þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem hún beri ábyrgð á í aðdraganda hrunsins. Jafnfram heitir flokkurinn því að hlusta með opnum huga á gagnrýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig. Þetta kemur fram í ályktun sem liggur fyrir flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fram fer á hótel Loftleiðum í dag og verður væntanlega samþykkt síðdegis. 4. desember 2010 15:07
Stjórnmálaflokkum verði bannað að auglýsa í sjónvarpi Samfylkingin hefur brennt sig illa á því að sækjast eftir og þiggja fé af einstökum fyrirtækjum og fjársterkum hagsmunaaðilum. Það er ljóst að flokkurinn hefur gert afdrifarík og alvarleg mistök með því að láta viðgangast að frambjóðendur öfluðu fjár frá fyrirtækjum, og jafnvel hvetja til þess. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar og lögð var fyrir flokksstjórn Samfylkingarinnar fyrr í dag. Nefndin leggur til að flokkurinn beiti sér fyrir því að sjónvarps- og útvarpsauglýsingar stjórnmálaflokka verði bannaðar í aðdraganda kosninga. 4. desember 2010 13:39
Ráðherrar sagðir í engum tengslum við flokkinn „Starf ráðherra er í litlum eða engum tengslum við flokkinn. Ráðherrar Samfylkingarinnar hafa engar skyldur um að standa skil á embættisfærslum sínum gagnvart eigin félögum og flokksmenn hafa engar formlegar leiðir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra flokksins,“ segir í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar sem lögð var fyrir flokksstjórn flokksins í hádeginu. 4. desember 2010 13:16