Tillaga um afsökunarbeiðni samþykkt 4. desember 2010 16:41 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, á fundi flokksstjórnar fyrr í dag.
Flokksstjórn Samfylkingarinnar samþykkti á fundi sínum í dag ályktun þar sem Samfylkingin biður íslensku þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem hún ber ábyrgð á í aðdraganda hrunsins. Jafnframt heitir Samfylkingin því að hlusta með opnum hug á gagnrýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig. Megin umfjöllunarefni fundarins í dag voru tillögur umbótanefndar Samfylkingarinnar. Nefndin var skipuð í aprílmánuði til að fara yfir starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins.Frumkvæði flokksins „Mikið hefur verið gert til að greina og rekja atburðarrás áranna 2007 og 2008 og hlut einstaklinga sem að málum komu í aðdraganda hrunsins. Þegar til framtíðar er litið skiptir meira máli að skilja hvað brást í skipulagi stofnana, regluverki og lögum samfélagsins, en ekki síður starfsemi stjórnmálaflokka. Þar hefur Samfylkingin tekið frumkvæði og axlað ábyrgð með úrbótum. Tillögur umbótanefndarinnar sem lagðar eru fram til umræðu meðal flokksmanna eru tímamót í þeirri vinnu," segir í ályktun flokksstjórnar Samfylkingarinnar. Samkvæmt ályktuninni fólst abyrgð Samfylkingarinnar meðal annars í: • Að taka ekki nægilegt mark á viðvörunarorðum um veika stöðu bankakerfisins. • Að vinna ekki nægilega markvisst að því að greina stöðu bankanna og undirbúa aðgerðir til draga úr óhjákvæmilegu tjóni vegna veikrar stöðu þeirra. • Að tryggja ekki gegnum skýrt skipulag flokksins að nægilegt upplýsingastreymi og samráð sé á hverjum tíma meðal ráðherra flokksins, þingflokks, flokksstofnana og almennra flokksmanna. • Að setja ekki ríkisstjórnarsamstarfinu nægilega ströng skilyrði um nauðsynlegar aðgerðir. • Að láta hjá líða að setja reglur um takmarkanir á fjárframlögum og styrkjum til frambjóðenda í fjölda opinna prófkjara, þvert á langvinna baráttu flokksins fyrir skýrum reglum um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda.Efnt til funda víðsvegar um landið „Samfylkingin heitir því að vera drifkraftur í því umbótastarfi sem þegar er hafið á Alþingi og í ríkisstjórn til þess að tryggja faglegt, ábyrgt og heiðarlegt stjórnkerfi, stjórnmálalíf og fjármálakerfi sem verðskuldar traust þjóðarinnar." Á næstu vikum efnir Samfylkingin til funda um land allt þar sem tillögur og niðurstöður umbótanefndarinnar verða teknar til umfjöllunar. Þar verður kallað eftir viðbrögðum og ábendingum meðal allra flokksmanna. „Í framhaldi af því verður tryggt að þeim umbótum sem umræðurnar leiða fram verði hrint í framkvæmt. Tillögur um áþreifanlegar aðgerðir í því efni verði lagðar tímanlega fyrir næsta landsfund flokksins, sem er æðsta vald hans þar sem almennir flokksmenn hafa síðasta orðið."
Tengdar fréttir Ingibjörg Sólrún á meðal fundarmanna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, var meðal fundargesta á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fer fram á Hótel Loftleiðum í dag. Megin umfjöllunarefni fundarins eru tillögur umbótanefndar flokksins en nefndin var skipuð í aprílmánuði til að fara yfir starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. Ingibjörg tók ekki til máls á fundinum en hún hefur nú yfirgefið samkunduna. 4. desember 2010 15:54 Stjórnarþátttakan afhjúpar veikleika flokksins Umbótanefnd Samfylkingarinnar kemst að þeirri megin niðurstöðu í skýrslu sem lögð er fyrir flokksstjórn í dag að bankahrunið og ríkisstjórnarþátttaka flokksins afhjúpi veikleika í flokksstarfinu. Varaformaður flokksins segir að ábyrgðin á bankahruninu megi ekki einskorðast við þá einstaklinga sem stóðu í eldlínunni á tíma hrunsins. 4. desember 2010 12:12 Samfylkingin biðji þjóðina afsökunar Samfylkingin biður þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem hún beri ábyrgð á í aðdraganda hrunsins. Jafnfram heitir flokkurinn því að hlusta með opnum huga á gagnrýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig. Þetta kemur fram í ályktun sem liggur fyrir flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fram fer á hótel Loftleiðum í dag og verður væntanlega samþykkt síðdegis. 4. desember 2010 15:07 Stjórnmálaflokkum verði bannað að auglýsa í sjónvarpi Samfylkingin hefur brennt sig illa á því að sækjast eftir og þiggja fé af einstökum fyrirtækjum og fjársterkum hagsmunaaðilum. Það er ljóst að flokkurinn hefur gert afdrifarík og alvarleg mistök með því að láta viðgangast að frambjóðendur öfluðu fjár frá fyrirtækjum, og jafnvel hvetja til þess. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar og lögð var fyrir flokksstjórn Samfylkingarinnar fyrr í dag. Nefndin leggur til að flokkurinn beiti sér fyrir því að sjónvarps- og útvarpsauglýsingar stjórnmálaflokka verði bannaðar í aðdraganda kosninga. 4. desember 2010 13:39 Ráðherrar sagðir í engum tengslum við flokkinn „Starf ráðherra er í litlum eða engum tengslum við flokkinn. Ráðherrar Samfylkingarinnar hafa engar skyldur um að standa skil á embættisfærslum sínum gagnvart eigin félögum og flokksmenn hafa engar formlegar leiðir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra flokksins,“ segir í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar sem lögð var fyrir flokksstjórn flokksins í hádeginu. 4. desember 2010 13:16 Mest lesið Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Erlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Innlent Fleiri fréttir Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Sjá meira
Ingibjörg Sólrún á meðal fundarmanna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, var meðal fundargesta á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fer fram á Hótel Loftleiðum í dag. Megin umfjöllunarefni fundarins eru tillögur umbótanefndar flokksins en nefndin var skipuð í aprílmánuði til að fara yfir starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. Ingibjörg tók ekki til máls á fundinum en hún hefur nú yfirgefið samkunduna. 4. desember 2010 15:54
Stjórnarþátttakan afhjúpar veikleika flokksins Umbótanefnd Samfylkingarinnar kemst að þeirri megin niðurstöðu í skýrslu sem lögð er fyrir flokksstjórn í dag að bankahrunið og ríkisstjórnarþátttaka flokksins afhjúpi veikleika í flokksstarfinu. Varaformaður flokksins segir að ábyrgðin á bankahruninu megi ekki einskorðast við þá einstaklinga sem stóðu í eldlínunni á tíma hrunsins. 4. desember 2010 12:12
Samfylkingin biðji þjóðina afsökunar Samfylkingin biður þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem hún beri ábyrgð á í aðdraganda hrunsins. Jafnfram heitir flokkurinn því að hlusta með opnum huga á gagnrýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig. Þetta kemur fram í ályktun sem liggur fyrir flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fram fer á hótel Loftleiðum í dag og verður væntanlega samþykkt síðdegis. 4. desember 2010 15:07
Stjórnmálaflokkum verði bannað að auglýsa í sjónvarpi Samfylkingin hefur brennt sig illa á því að sækjast eftir og þiggja fé af einstökum fyrirtækjum og fjársterkum hagsmunaaðilum. Það er ljóst að flokkurinn hefur gert afdrifarík og alvarleg mistök með því að láta viðgangast að frambjóðendur öfluðu fjár frá fyrirtækjum, og jafnvel hvetja til þess. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar og lögð var fyrir flokksstjórn Samfylkingarinnar fyrr í dag. Nefndin leggur til að flokkurinn beiti sér fyrir því að sjónvarps- og útvarpsauglýsingar stjórnmálaflokka verði bannaðar í aðdraganda kosninga. 4. desember 2010 13:39
Ráðherrar sagðir í engum tengslum við flokkinn „Starf ráðherra er í litlum eða engum tengslum við flokkinn. Ráðherrar Samfylkingarinnar hafa engar skyldur um að standa skil á embættisfærslum sínum gagnvart eigin félögum og flokksmenn hafa engar formlegar leiðir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra flokksins,“ segir í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar sem lögð var fyrir flokksstjórn flokksins í hádeginu. 4. desember 2010 13:16