Innlent

Handrukkari stórslasaði mann með hnúajárni

Maðurinn notaði hnúajárn við „innheimtuna“.
Maðurinn notaði hnúajárn við „innheimtuna“.

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir handrukkun. Fórnarlambið, sem var stórslasað eftir líkamsárásina, neitaði að bera vitni fyrir dómi af ótta við það sem gæti hent stæði hann við fyrri frásögn sína í málinu. Handrukkarinn var engu síður dæmdur á grunni skýrslu sem fórnarlambið hafði gefið hjá lögreglu, vætti tveggja lögreglumanna sem komu á vettvang, svo og vettvangs- og læknisrannsókn og fleiri gagna.

Það var fimmtudaginn 29. janúar á síðasta ári sem tilkynning barst til lögreglu um að ráðist hefði verið á mann í Mosfellsbæ. Þar reyndist vera tæplega þrítugur maður mikið meiddur á höfði. Hann kvað tvo menn hafa ruðst inn til sín. Hefði annar þeirra sparkað ítrekað í sig, lúbarið sig með hnúajárni og barsmíðarnar borist um allt hús. Fórnarlambið sagði manninn hafa komið til að innheimta fíkniefnaskuld, rúmlega 100 þúsund krónur.

Við læknisskoðun kom í ljós að sá sem ráðist var á var nefbrotinn, kinnbeinsbrotinn, fingurbrotinn og fékk sprungu í höfuðkúpu. Þá brotnuðu fjórar tennur í honum, auk þess sem sauma þurfti skurði í andliti hans.

Í niðurstöðu dómsins kom fram að árásin á manninn hefði verið sérlega hrottaleg og ófyrirleitin. Árásarmaðurinn hefði fengið kunningja til að veita sér falska fjarvistarsönnun sem síðan var dregin til baka og reynt með öðrum hætti að hafa áhrif á úrslit málsins.

Farsími hans hefði verið staðsettur í Mosfellsbæ, þótt hann þættist hafa verið annars staðar á þeim tíma. Framburður hans hefði verið hverfull og ótrúverðugur.

- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×