Handrukkari stórslasaði mann með hnúajárni 26. júní 2010 07:30 Maðurinn notaði hnúajárn við „innheimtuna“.
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir handrukkun. Fórnarlambið, sem var stórslasað eftir líkamsárásina, neitaði að bera vitni fyrir dómi af ótta við það sem gæti hent stæði hann við fyrri frásögn sína í málinu. Handrukkarinn var engu síður dæmdur á grunni skýrslu sem fórnarlambið hafði gefið hjá lögreglu, vætti tveggja lögreglumanna sem komu á vettvang, svo og vettvangs- og læknisrannsókn og fleiri gagna. Það var fimmtudaginn 29. janúar á síðasta ári sem tilkynning barst til lögreglu um að ráðist hefði verið á mann í Mosfellsbæ. Þar reyndist vera tæplega þrítugur maður mikið meiddur á höfði. Hann kvað tvo menn hafa ruðst inn til sín. Hefði annar þeirra sparkað ítrekað í sig, lúbarið sig með hnúajárni og barsmíðarnar borist um allt hús. Fórnarlambið sagði manninn hafa komið til að innheimta fíkniefnaskuld, rúmlega 100 þúsund krónur. Við læknisskoðun kom í ljós að sá sem ráðist var á var nefbrotinn, kinnbeinsbrotinn, fingurbrotinn og fékk sprungu í höfuðkúpu. Þá brotnuðu fjórar tennur í honum, auk þess sem sauma þurfti skurði í andliti hans. Í niðurstöðu dómsins kom fram að árásin á manninn hefði verið sérlega hrottaleg og ófyrirleitin. Árásarmaðurinn hefði fengið kunningja til að veita sér falska fjarvistarsönnun sem síðan var dregin til baka og reynt með öðrum hætti að hafa áhrif á úrslit málsins. Farsími hans hefði verið staðsettur í Mosfellsbæ, þótt hann þættist hafa verið annars staðar á þeim tíma. Framburður hans hefði verið hverfull og ótrúverðugur. - jss
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira