Innlent

Tveir alvarlega slasaðir eftir slys á Sæbraut

Tveir eru alvarlega slasaðir eftir alvarlegt umferðarslys á Sæbraut á móts við Olís Klöpp. Slysið varð um klukkan þrjú í nótt og voru fjórir í í bifreiðinni, tveir slösuðust alvarlega og er annar þeirra nýkominn úr aðgerð og hinn á leið í aðgerð á Landspítalanum að sögn vaktahandi læknis.

Þeir verða báðir lagðir inn á gjörgæslu að loknum aðgerðum. Hinir tveir slösuðust minna en fóru á sjúkrahús til eftirlits. Tildrög slyssins eru ekki ljós að sögn lögreglu en bifreiðin er ónýt eftir óhappið og þurfti að að beita klippum til að ná fólkinu út úr bifreiðinni.

Lögregla þurfti að loka hluta Sæbrautar til klukkan hálffimm í morgun vegna óhappsins en ekki leikur grunur á að ökumaður hafi verið undir áhrifum áfengis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×